Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Page 136

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Page 136
Múlaþing Til dæmis hafa íslendingasögur og þættir þar sem ijallað er um Vopnafjörð tengt okkur við umhverfí okkar, landslag, baráttu genginna kynslóða, sérvisku, kúnstir, húmor og hetjuskap. Skapað samræðugmndvöll milli ólíkra einstaklinga og brúað kynslóðabil. Það er viðurkennt að Islandssaga Jónasar hafði sterk áhrif á þjóðemis- kennd og sjálfsmynd margra kyn- slóða nemenda sem drukku í sig túlkun sögunnar að hætti Jónasar. Tel ég það ekki hafa haft skaðvæn- Ieg áhrif á nemendur svo fremi sem önnur kennsla og uppeldi jók gagn- rýna hugsun og víkkaði sjóndeildar- hring nemenda. Það skaðar engan að vera stoltur af uppmna sínum svo fremi sem asklokið komi ekki í stað himins og þröngsýni / einsýni skerði frelsi hugans. Ömefni em menningararfúr sem er að glatast með breyttum búskaparháttum og búsetu. Með ömefnum hverfúr einatt saga eða sögur sem skýra margt í landslagi eða segja örlagasögur. Ömefndaskrár em víða til og hafa verið endurskoðaðar og jafnvel em til ömefnaskrár sem hjálpa áhugafólki að átta sig, en böm sem læra ekki ömefni á sínum bemskuslóðum tapa miklu, þau verða eins og rótlaust þang, eiga hvergi heima nema innan fjögurra veggja innan um dót sem þá og þá þykir nauðsynlegt. Eg hef æði oft heyrt fullorðna Vopnfírðinga hneysklast á því hve fáir þekkja núorðið ömefni sem em þeim eldri töm. Ætli því hafí verið þannig háttað um og fyrir miðja síðustu öld að Vopnfírðingar fæddust með fullritaða ömefnaskrá í kollinum? Er þetta fólk búið að gleyma hvemig það lærði að þekkja örnefni? Var það kannske afí, amma, pabbi, mamma, frændi, frænka eða bara sá léttheimski á næsta bæ sem miðlaði þekkingu sinni? Bömin okkar og bamabömin læra ekki að þekkja ömefni og sögur tengdar þeim á Netinu, hvað sem við kaupum flottar græjur og GPS staðsetningar ömefna koma ekki í stað þess að ganga eða ríða um landið og fá munnlega fræðslu um ömefni fléttaða inn í störfin sem verið er að sinna eða ferðalagið sem stendur yfír. Eg hef tekið eftir því að smala-ferðum barna í sveit hefúr snarfækkað á liðnum tveim áratugum. Kemur þar ýmislegt til og ekki allt jákvætt, ekki eingöngu menningarsögulega (þar sem ömefnin týnast) líka heilsufarslega, þar sem endalaust rölt eftir kúm, hestum og kindum kom í stað endalausra æfinga í svitalofti íþróttahúsa þar sem spanað er upp keppnisskap, ekki alltaf með það að leiðarljósi að leggja sitt besta fram fýrir aðra, húsbænduma, foreldrana eins og smalaferðimar forðum. Eg hef reyndar mestar áhyggjur af því að bömin tapi þeim áhrifum sem ömefni hafa á tengingu við fortíð og allar þær hugrenningar sem um barnshugann fer þegar verið er að reyna að skilja ömefni sem stundum em eins og hrein latína eða volapikk í eyrum. Agústa Þorkelsdóttir flytur erindi sitt á málþinginu Nýtt Island. 134
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.