Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2013, Page 32

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2013, Page 32
Múlaþing Tveimur árum síðar virðist lítið hafa dregið úr því að böm væm að leika sér í garðinum. I blaðinu Austurland var m.a. skrifað að krakk- amir hefðu lagt það í vana sinn að „ryðjast inn í garðinn og gera hann að leikvelli og valdið skemmdum á gróðri. Hefur svo rammt kveðið að yfirgangi krakkanna, að unglingar, sem vinna að hreinsun og öðrum störfum í garðinum hafa ekki fengið að vera í friði.“34 Eyþór var umsjónarmaður garðsins til ársins 1967, þegar hann gat ekki sinnt honum lengur. Frá árinu 1968 til ársins 1976 virð- ist engin garðnefnd hafa starfað og enginn hafa verið ráðinn til að sjá um skrúðgarðinn. Honum fór því mikið aftur á þessu tíma- bili.35 Einhverjir hljóta þó að hafa unnið í skrúðgarðinum á þessum ámm, þó þar hafi kannski ekki starfað fagmenn. Hugsanlega hefur umhirða garðsins verið eitt af verkefnum unglingavinnunnar eða sem íhlaupaverk hjá föstum starfsmönnum bæjarins. En sumarið 1973 var unnið að endurbótum og umhirðu skrúðgarðsins og „hugmyndin er að halda því áíf am næstu ár,“ sagði í auglýsingu frá Loga Kristjánssyni bæjarstjóra í bæjarblöðunum þetta sumar. „Því aðeins má þetta takast, að garðurinn fái að vera í friði og þar séu ekki unnin skemmdarverk eða gengið um á lok- unartíma," sagði Logi.36 Illa virðist hafa gengið að koma í veg fyrir skemmdarverk í garðinum því að ári síðar birtist önnur auglýsing ífá Loga bæjarstjóra, þar sem stóð: Fólki er skylt að ganga snyrtilega um garðinn og hrófla hvergi við gróðri, og óheimilt er að leita þar ánamaðka. Böm mega ekki vera að leik í garðinum, nema í fylgd með full- 34 Austurland. 4. júní 1965, bls. 2. f Eyþór Þórðarson, „Skrúðgarður Neskaupstaðar (saga og gerð).“ Garðyrkjuritið 1984. Reykjavík 1984, bls. 138-139. 36 Austurland. 28. sept. 1973, bls. 4. orðnum, sem gæti þeirra. Aðeins má fara í garðinn um opin hlið, og engir utan starfs- menn garðsins mega dvelja þar utan ofan- skráðs opnunartíma. Brot gegn fyrirmælum þessum varða sektum.37 Næstu sumur var garðurinn opnaður þann 17. júní og daglega eftir það frá 13:00 til 19:00 fram á haust.38 Veturinn 1976 var Guðbjörn Oddur Bjamason skrúðgarðyrkjumeistari ráðinn til að sjá um garðinn. Undir hans stjóm, árið 1978, var garðurinn stækkaður upp að sund- lauginni. Melurinn á milli sundlaugarinnar og garðsins var sléttaður og lagðar grasþökur yfír, gerðir stígar, blómabeð og gróðursett tré. Girðingin sem afmarkaði eldri hluta garðsins að vestan var Ijarlægð og trjábeð sem stóðu við girðinguna á þriðju og ljórðu flöt í garð- inum, jöfnuð út.39 Guðbjöm Oddur sá um garðinn til ársloka 1980 og við starfi hans tók Jón Þorgeir Þorgeirsson.40 Þann 9. júní árið 1986 var haldinn fyrsti fundur Skrúðgarðsnefndar Neskaupstaðar, en fyrri skrúðgarðanefndin hafði ekki verið starfandi um árabil. Kvenfélagið hafði þrýst nokkuð á bæjaryfirvöld um að kjósa í slíka nefnd að nýju. I neftidina vom kosin af hálfú bæjarstjórnarinnar þau Sigrún Geirsdóttir, Benedikt Sigurjónsson og María Bjamadóttir og kvenfélagið átti tvo fulltrúa í nefndinni, þær Sigrúnu Þormóðsdóttur og Margréti Bjöms- dóttur.41 A þessum fýrsta fúndi nefndarinnar var m.a. rætt um fyrirhugaðar framkvæmdir 37 Austurland. 19. júní 1974, bls. 3. 38 Sjá t.d. Austurland. ló.júní 1974, bls. 4. 39 Eyþór Þórðarson, „Skrúðgarður Neskaupstaðar (saga og gerð).“ Garðyrkjuritið 1984. Reykjavík 1984, bls. 139. 40 Eyþór Þórðarson, „Skrúðgarður Neskaupstaðar (saga og gerð).“ Garðyrkjuritið 1984. Reykjavík 1984, bls. 139. 41 Héraósskjalasafn Austfirðinga. (Hér eftir Hskj. Austf.) Fundar- gerðir Skrúðgarðsnefndar Neskaupstaðar. 1986-1988. 9. júní 1986. 30
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.