Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2013, Blaðsíða 73
Syngi, syngi, svanur minn
Hallveig Friðrikka Guðjónsdóttir er fædd á Heiðarseli 11. maí árið 1923 og átti þar heima
í foreldrahúsum til ársins 1946 er þau Guðjón og Guðrún María brugðu búi síðust bænda í
heiðinni eins og fyrr er getið og fluttu á Seyðisijörð. Hallveig giftist síðar Stefáni Guðmunds-
syni frá Dratthalastöðum í Hjaltastaðaþinghá og bjuggu þau þar frá árinu 1959 til 1991 er
þau fluttu í þéttbýlið á Egilsstöðum. Stefán er látinn fyrir nokkrum árum en Hallveig, sem
er ein eftirlifandi af systkinunum frá Heiðarseli býr enn á Egilsstöðum og er vel em þrátt
fyrir níræðan aldur.
Heimildir
Austri - Jólablað 1995, 40. árg., bls. 12 og 13: „Síðasti bærinn í Heiðinni". Egilsstöðum 1995.
Bókaútgáfan Norðri: Aldreigleymist Austurland... -Austfirzk Ijóð. Helgi Valtýsson safnaði. Akureyri
1949.
Einar Hjálmar Guðjónsson frá Heiðarseli: Skýjarof - Ljóð og lausavísur. Akureyri 1981.
Félag ljóðaunnenda á Austurlandi: Raddir að austan - Ljóð Austfirðinga. Hafnarfirði 1999.
Hallveig Guðjónsdóttir frá Heiðarseli: Tíbráin titrar - kvæði ogfrásagnir. Egilsstöðum 2007.
Hallveig Guðjónsdóttir frá Heiðarseli: Stiklað á steinum - kvœði. Egilsstöðum 1990.
Huldumál - hugverk austfirskra kvenna. Samband austfirskra kvenna 2003.
Sveitir og jarðir í Múlaþingi, I. og II. bindi. Armann Halldórsson sá um útgáfuna. Búnaðarsamband
Austurlands 1974 og 1975.
Sveitir ogjarðir í Mulaþingi, 5. bindi. Búnaðarsamband Austurlands. Egilsstöðum 1995.
Munnlegar heimildir
Hallveig Guðjónsdóttir frá Heiðarseli, f. 1923.
Leiðrétting
Þau mistök urðu við setningu 38. heftis Múlaþings að settur var rangur texti við
mynd af Lúðvíki Ingvarssyni, fyrrum sýslumanni Sunnmýlinga, er birtist með
grein sem Benedikt V. Warén ritaði um flugslysið á Valahjalla árið 1941. Undir
myndinni var Lúðvík titlaður „refsidómari á þjóðveldistímanum“. Múlaþing
biðst hér með afsökunar á þessum mistökum.
Fyrir þá sem ekki þekkja til er við hæfi að láta fylgja með þessu stutt
æviágrip Lúðvíks.
Lúðvík fæddist á Norðfírði 12. júlí 1912, sonur Ingvars Pálmasonar alþingismanns og útvegs-
bónda og konu hans, Margrétar Finnsdóttur. Lúðvík lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri 1933 og lagaprófi frá Háskóla íslands árið 1938. Hann var sýslumaður Suður-Múlasýslu
1939 - 1960 að frátöldum námsleyfum er hann stundaði framhaldsnám og rannsóknir í refsirétti
og réttarsögu í Cambridge og Kaupmannahöfn.
Lúðvík stundaði útgerð og fiskvinnslu á Fáskrúðsfirði 1960-1964 og síðar kennslu- og skrif-
stofustörf á Austurlandi á árunum 1964-1970. Lúðvík var lektor og síðar prófessor við lagadeild
Háskóla íslands 1971-1981. Hann varði doktorsritgerð sína ,fiefsingar á Islandi áþjóðveldistímanumu
árið 1971, en meðal annarra ritstarfa hans má telja merkast ritið „Goðorð oggoðorðsmenn“ er hann
gaf út á árunum 1986-1987.
Lúðvík Ingvarsson lést á 100. aldursári 20. ágúst 2011. Hann var vel ern andlega og líkamlega
fram í andlátið.
71