Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2013, Page 123

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2013, Page 123
Frá vetrardvöl í Holti í Fellum við Kelduá, sem var enn mórauð þótt mikið hefði sett úr henni, eftir því sem mér var sagt. Á eyrum móts við Arnaldsstaði hittum við Erling Sveinsson bónda á Víðivöllum fram. Hann vissi um hestinn í stóði á grundum litlu innar. Okkur gekk vel að ná honum og reynd- ist hann vel taumvanur. Þama á grundunum gaf á að líta viðurstyggð eyðileggingarinnar af völdum náttúruaflanna. Voru skriðumar i Múlanum seytján og náðu sumar ofan frá brún og niður í Kelduá og voru báðum megin bæjar á Arnaldsstöðum, jarðvegur skafinn niður í berar klappir og allt var kafið í aur og leðju með ánni alveg út að Múlaenda. En bæimir tveir sluppu alveg og fólk sakaði ekki. Enginn þarf að kenna sauðíjárbeit um þessa gróðureyðingu. Við teymdum hestinn auðveldlega yfir ámar út i Bessastaði og vorum komnir þangað upp úr hádegi. Eftir litla dvöl þar hélt ég af stað með Brún í taumi, fór fremur hægt og kom um kvöldið að Holti. Ekki lagði Brúnn aftur til sumardvalar inn í Suðurdal en þar er ágætt beitiland fyrir hesta. Þessi ferð rifjaðist upp fyrir mér mörgum áratugum síðar, er ég kom í hópi frá Ferða- félagi íslands að stóði á hinum fögm gmndum fyrir innan Ábæ í Austurdal í Skagafirði. Einnig hlýddum við á messu í gömlu kirkjunni á Ábæ. Þar messaði Olafur Hallgrímsson systursonur Hallgríms í Holti. Þar hitti ég mikinn fróðleiksmann, Hjörleif Kristinsson, systurson Erlings á Víðivöllum. Ég lagði af stað í síðari ferðina 1. desember og tók hún ijóra daga. Förinni var heitið í Klaustursel á Jökuldal til að sækja kindur. Áður var nefndur Jón Einarson á Ási. Hann fór með mér vestur, hafði oft farið í haustgöngur í Klausturselsheiði en ijórir menn voru sendir þangað úr Fellum í fyrstu göngu. Hann gisti í Holti og við lögðum af stað með allra fyrstu skímu um morguninn. Þegar upp á brúnir kom var að verða fullbjart. Alautt var á láglendi en þarna uppi var samfellt svell og óskaði ég Anna Jóhannsdóttir húsfreyja á Bessastöðum í Fljótsdal. Eigandi myndar: Ljósmyndasafn Austurlands. helst að hafa skautana mína. En ekki var hált á gljánni og leiði því eins og best var á kosið. Bjartviðri var og við stefndum beint í vestur. Fljótsdalsheiði er háslétta í rúmlega 600 metra hæð og er um 20 km. loftlína frá Holti að Klausturseli. Okkur reyndist þetta rösk skammdegisganga því byrjað var að rökkva er við komum niður á snögglent harðvelli fyrir utan bæinn í Klausturseli. Við höfðum stefnt á norðari Eiríkstaðahnefíl, farið skammt norðan Hengifossárvatna og man ég að Jón nefndi steina tvo Bræður á vinstri hönd. Ég hafði aldrei fyrr komið svona langt inn á heiðina en hafði oft smalað í miðhluta Fella- heiðar. En Jón Einarsson þekkti öll ijallanöfn og ég hafði heyrt gangnamenn nefna mörg önefni áður, t. d. Sauðárdrög og Tregludrög. Var það Jóni að þakka að ég tók eftir þeim, því ámar (Sauðá og Tregagilsá) voru báðar 121
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.