Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2013, Blaðsíða 51
Griðastaðir guðanna
Borgarklettur á Mýrum. Ljósmynd: Hulda Sigurdís Þráinsdóttir.
og voru þeir þá fullir af gulli og lauf sem hann
hafði stungið í vasa sína voru gullpeningar.39
Goðaborg á Borgarkletti á Mýrum í
Hornafirði
Enn ein Goðaborgin er grasi vaxin bunga á
Borgarkletti á Mýrum, tignarlegum kletti,
þverhníptum á þrjár hliðar. Líkt og með aðrar
Goðaborgir hefur alla tíð hvílt mikil helgi og
dulúð yfir þessari Goðaborg eins og reyndar
Borgarklettinum öllum. Borgin var friðlýst
samkvæmtþjóðminjalögum 1931. Árið 1999
fór þar fram fomleifarannsókn undir stjóm
Bjarna F. Einarssonar, fomleifafræðings.
Teknar vom tvær prufuholur sem þóttu benda
til að á klettinum hafi verið aftökustaður til
forna, en rústir neðan við klettinn þykja
benda til að þar hafi verið þingstaður.40 Sú
trú er tengd Borgarkletti að undir honum sé
fólgin kista full af gulli. Sumir segja þó að
kistan sé fólgin uppi á klettinum, þ.e. í sjálfri
Goðaborginni. Margir hafa freistað þess að
finna gullið, en enginn haft erindi sem erfiði
því alltaf þegar hróflað er við jörðu í nágrenni
við klettinn sýndist mönnum bærinn á Borg
standa í Ijósum logum. Síðasta tilraun sem
gerð var í leit að gullkistunni svo vitað sé, var
gerð laust eftir 1930 af systkinum sem þá ólust
upp í foreldrahúsum á Borg. Til að stefna nú
ekki heimilinu í voða stóð þó elsti bróðirinn,
Gísli, á verði á meðan systkini hans grófú í
álitlega þúfu undir klettinum. Gullleitin tók
hins vegar skjótan endi þegar Gísli sá rjúka
úr strompinum. Var þá gengið frá þúfunni
og hlaupið heim. Heima stóð móðir þeirra
yfír rjúkandi pottum og allt í stakasta lagi.41
Goðafjall í Öræfum (651 m)
í fjallgarðinum milli Sandfells og Hofs í
Öræfum er keilumyndaður tindur sem kall-
ast Goðafjall. Engar þekktar sögur eru því
tengdar.42
39 Guðmundur Jónsson Hoffell 1946, 80 41 Gísli, Lilja og Steinunn Arabörn. Viðtal tekið í júní 1998
40 Bjarni F. Einarsson 2002, 44-5 42 Sigurður Björnsson 1979, 93
49