Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2013, Page 92
Múlaþing
Foreldrar Stefáns, Sveinbjörgfóstursystir hans og Stefán sjálfurframan við bœinn á Höskuldsstöðum. Ljósmyndin
er tekin um 1920.
Systkini Stefáns voru þau Aðalheiður og
Bjöm. Bjöm, hálfbróðir Stefáns, var fæddur
1880 og flutti til Einars og Margrétar þegar
þau giftu sig, þá 10 ára gamall. Bjöm varð
úti í túninu á Höskuldsstöðum í ofsaveðri í
febrúar 15. febrúar 1898, aðeins 17 áragamall.
Aðalheiður var fyrsta bam Einars og Margrétar
fædd 2. júní 1891 en hún lést tæplega 17 ára
í mars 1908 eftir veikindi. Aðalheiður var
mjög efnileg stúlka og vel gefin. Margrét unni
Aðalheiði mjög og tók afskaplega nærri sér
fráfall hennar. Var þá gerður heimagrafreitur
á Höskuldsstöðum. Síðar vora svo hjónin
jarðsett þar sem og Stefán.
Helstu æviatriði
Eins og áður kom fram fæddist Stefán árið
1897 og ólst hann upp á Höskuldsstöðum.
Síðar sagði hann sjálfúr svo frá, líklega að hluta
til í gríni, að þegar í ljós kom að hann þekkti
ekki á frá sauð í hjásetunni og var þungur
til verka, en vildi alltaf liggja í bókum, hafi
Margrét móðir hans ákveðið að hann skyldi
ganga menntaveginn. Jafnframt hefur verið
sagt að eflaust hafí hún viljað stuðla að því
að hann nyti þeirrar menntunar sem hún þráði
sjálf en fór á mis við. Til era heimildir um að
Margrét hafi verið ötull þátttakandi í ýmis-
konar félagsstarfi. Sem dæmi má nefna að hún
var fyrsti formaður Góðgjörðafjelagsins Ein-
ingar sem starfaði í Breiðdalnum um áratuga-
bil og er forveri björgunarsveitar með sama
nafni. Jafnframt eru til heimildir um leikrit sem
Margrét samdi og flutt vora á svokölluðum
Einingarsamkomum í Breiðdalnum, og eins
á aldamótahátíð sem haldin var á Eydölum
23. maí 1901.
Til er frásögn tengd Stefáni og námi hans,
sem vitnar til um það hve stolt Margrét var
af syni sínum. Föðuramma greinarhöfundar,
Hlíf Magnúsdóttir, sagði honum þessa sögu:
Hún hafí verið 8 eða 9 ára gömul og á ferð
90