Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2013, Page 96

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2013, Page 96
Múlaþing Ritaskrá Færslumar í ritaskrá Stefáns, þ.e. útgefnar bækur og birtar greinar, eru 523 talsins og spanna tímabilið frá 1920 til 1969. Birtar greinar eftir hann em 208 talsins og ritdómar eru 297. Sextán bækur gaf hann út sjálfur en ritstýrði þremur og við eina vann hann að hluta. Eins og áður hefur komið fram lauk Stefán doktorsprófí frá Oslóarháskóla árið 1927, en ritgerð hans liét Beitrage zur Phonetik der islándischen Sprache. Arið 1930 kom síðan einnig út í Osló önnur bók eftir hann um hljóðfræði í íslensku máli: A Specimen of southern Icelandic speech. A contribution to Icelandic phonetics. Fyrsta bókin sem Stefán skrifar aftur á móti á íslensku var Saga Eiríks Magnússonar sem kom út í Reykjavík árið 1933, en Eiríkur Magnússon fræðimaður og bókavörður í Cambridge var ömmubróðir Stefáns. Árið 1939 kom út eftir hann bókin Þórbergur Þórðarson frœðimaður, spámaður, skáld: fimmtugur, 1889, 12. marz 1939. Erlendis komu svo einnig út eftir hann eftir- taldar bækur: Icelandic Grammar Texts Gloss- ary (Baltimore 1945), History of Icelandic prose writers: 1800-1940 (Ithaca 1948), Linguaphone Icelandic course I-III (London 1955), og A history of Icelandic literature (NewYork 1957). Sennilega hefúr enginn fyrr og síðar kynnt ísland og íslenskar bókmenntir jafn ítarlega fyrir hinum enskumælandi heimi og Stefán Einarsson. Aðrar bækur Stefáns skrifaðar á íslensku vom: Efnisskrá Eimreiðarinnar 1895-1945 (Reykjavík 1946), Skáldaþing (Reykjavík 1948), Um kerfisbundnar hljóðbreytingar í íslensku (Reykjavík 1949) og Islenzk bók- menntasaga 874-1960 (Reykjavík 1961). Einnig komu út eftir hann eftirtaldar bækur sem tengdust heimaslóðum hans og lýsa þær vel tryggð hans við uppmna sinn: Breiðdœla. Drög til sögu Breiðdals (Reykjavík 1948), Austfirðir sunnan Gerpis. Arbók 1955, Aust- firðirnorðan Gerpis. Arbók 1957, og Austfirzk skáld og rithöfundar 1964. Örnefnasöfnun Stefán vann ötullega að söfnun ömefna i Breiðdal og á Austurlandi um árabil og ljóst er að sú vinna hans var nátengd öðmm verkum hans svo sem Breiðdælu, ritun Arbóka Ferða- félags íslands, og fleiru. Stefán var óþrjótandi að hvetja aðra við söfnun ömefna, og ferð- aðist sjálfur talsvert um Austurland til þess að leita heimilda. Stefán var alþýðlegur og laus við allan lærdómshroka. Það var venja hans þegar hann sótti fólk heim til að rita ömefnin að setjast inn í eldhús því þar vom hlýindin og þar var fólkið. Hann vildi ekki láta loka sig inni í köldum stofum. Stór hluti rannsóknanna fór þó fram með bréfaskriftum Stefáns frá Bandaríkjunum. Ekki voru þó allir eins uppteknir og Stefán af þeirri hugmynd að safna þyrfti ömefnum í Breiðdalnum. Hann fékk oft rýr eða engin svör við bréfum sínum til fólks. Hér fylgja nokkur brot úr bréfúm Stefáns til Sigurjóns, en þau lýsa mjög vel tengslum Stefáns við sveitina sína og það hversu umhugað honum var að skrá sögu hennar, ömefni, og annan þjóðlegan fróðleik. Einnig varpa þau vel ljósi á að það hefur engan veginn verið einfalt að vinna með efni og upplýsingar sem yfirleitt vom hinum megin við heilt heimshaf. I bréfi sem dagsett er 6. mars 1931 stendur skrifað: Kæri vinur! Illa þykir mér þú reynast um bréfaskriftimar og lángleiður er ek orðin að bíða svars ffá þér. Raunar þykist ég skilja hvar fiskur liggur undir steini, ég mun hafa lagt alltof margar spurningar fyrir þig í einu og óhægt að draga saman svör við þeim öllum. Ég hef nú skrifað Ola Guðbrandssyni og Jóni Gunnarssyni - auk þín og beðið þá um 94
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.