Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2013, Síða 98

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2013, Síða 98
Múlaþing Vésteinn Ólason Bókmenntarannsóknir Stefáns Einarssonar Ur erindi fluttu í Breiðdalssetri á Stefánsdegi ll.júní 2011. Stefán Einarsson hefur lýst tildrögum bókmenntarannsókna sinna og framvindu í eftirmála bókarinnar Skáldaþing, sem er safn greina um íslenskar bókmenntir sem birtist í Reykjavík árið 1948. Þar segir hann: Þegar ég kom vestur um haf haustið 1927, hafði ég hugsað, að mér mundi ef til vill gefast tækifæri til að sækja ísland heim á sumrum og ferðast um landið til að gera athuganir á islenzkum mállýzkum. Hins vegar vildi ég gjaman hafa eitthvert annað íslenzkt rannsóknarefni til ígripa hér vestan hafsins og lá þá nokkuð beint fyrir að taka til meðferðar hina mjög vanræktu bókmenntasögu 19.-20. aldar En ég var enginn bókmenntafræðingur og treysti mér því miðlungi vel til verksins, ekki sizt hvað kveðskapinn snerti. Sumarið 1928 hittumst við Richard Beck í Iþöku, í íslenzka bókasafninu þar, í fyrsta sinn. Færði ég þá hugmynd mína í tal við hann og spurði, hvort hann vildi ekki taka að sér ljóðskáldin. Var hann til þess fús, enda sjálfur ljóðskáld (Skáldaþing, 471). Stefán gerir síðan grein fyrir hvemig greinar hans urðu til; hann safnaði efni um rithöfundana úr blöðum og tímaritum: ... aukþess sem ég reyndi að vinna úr því í greinum þeim, sem hér em prentaðar, auknokkurra annarra um skylt efni ásamt bæklingi um Þórberg Þórðarson fimmtugan, og ævi Halldórs Laxness, er ég tók saman 1930 sem einskonar inngangsfræði að Vefaranum mikla, þótt sú bók bíði enn prentunar. Við þessa vinnu átti Stefán í miklum bréfaskiptum við höfunda, skrifaði þeim og leitaði upp- lýsinga. í handritadeild Landsbókasafns er varðveittur fjöldi bréfa frá höfundum, merkilegar heimildir um ævi þeirra og störf og sýna hvernig þeir litu sjálfir á ritstörf sín. Eins og Stefán nefnir vann hann að ritun ævisögu Halldórs Laxness á ámnum um 1930. Það hlýtur að vera nærri einsdæmi að fræðimaður taki sér fyrir hendur að semja ævisögu rithöfundar sem ekki er nema 26 ára gamall þegar hugmyndin kviknar, jafnvel þótt fræðimað- urinn sjálfur sé aðeins fimm ámm eldri og höfundurinn óvenju efnilegur. Þetta tiltæki sýnir að mínum dómi dirfsku Stefáns, og svo auðvitað að hann hafði áttað sig á einstökum hæfileikum Halldórs og því hve þroskaferill hans á æskuárum var óvenjulegur og merkilegur. Vefarinn mikli frá Kasmír sannfærði Stefán um að Halldór væri snillingur. Þótt rit Stefáns um Halldór Kiljan hafi því miður aldrei birst opinberlega, hélt hann allmarga fyrirlestra um verk hans og birti um hann greinar auk kafla í yfirlitsritum. Hann átti þannig drjúgan hlut í að kynna Halldór og verk hans í enskumælandi heimi. Heimildasöfnun Stefáns var grundvöllur síðari rannsókna og raunar undirstaða allra frásagna af þroskasögu Halldórs Kiljans Laxness fram til þess að hann hóf ritun raunsæislegra skáldsagna með Sölku Völku. Allt of langt mál yrði að reyna að gera hér grein fyrir öllum bókmenntaskrifúm Stefáns. Auk Skáldaþings, sem ég nefndi í upphafi, komu út eftir hann fimm bækur um bókmenntaleg efni: Þórbergur Þórðarson frœðimaður-spámaður-skáldfimmtugur 1939, History oflceiandic Prose 96
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.