Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2013, Page 101

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2013, Page 101
Bókmenntarannsóknir Stefáns Einarssonar Margir skemmtilegir kaflar eru í þessu riti Stefáns frá honum sjálfum, auk þeirra sem hann dregur fram úr ritum Þórbergs. í formála minnist hann á tvö bréf frá Þóbergi, hið fyrra Bréf til Láru, sem honum barst til Finnlands frá Þórbergi sjálfum, þótt ekki væri það beinlínis til hans, og það síðara var svar Þórbergs við fyrirspumum Stefáns vegna bókmenntasöguskrifanna. Stefán segir: Hið síðara bréfið barst mér á þakkargerðardagsmorgun 28. nóv. 1934. Þann dag, sem helgaður er minningu hinna amerísku landnámspílagríma, hafði ég ætlað að helga á 100% ameríska vísu með því að fara í bað. Því miður hugleiddi ég ekki þá, að næst bílum, sem í Ameríku eru eins hættulegir lífí og limum og togarar, mótorbátar og róðrarkænur samanlagt á Islandi, eru baðker einhver sú stórhættulegasta tilfæring, sem Ameríkumenn hafa af hyggjuviti sínu uppfundið. Þetta mátti ég nú sanna á sjálfum mér, er ég féll á baðkersröndina og hálfdrap mig í síðubarðinu. Þá kom konan mín með bréf frá Þórbergi Þórðarsyni, en svo illa haldinn sem ég var, þá var ekki að tala um að stöðva hláturinn, sem brauzt innan sárra rifja og slapp loks af vörunum sem ýlfúr og kvein (bls. 6). Eins og við á í afmælisgrein sparar Stefán ekki lofið um Þórberg. Augljóst er að auk húmorsins kann hann vel að meta uppreisnargimi Þórbergs og sannfæringarkraft og deilir skoðunum hans á mörgum efnum. Þó auðvitað ekki öllum, sbr. t.d. umljöllun hans um Rauðu hœttuna, ritið sem Þórbergur birti eftir för sína til Sovétríkjanna 1935. Stefán segir: Þrátt fyrir allt verð ég að játa, að Rauða hættan snerti mig ekki á sama hátt og Bréf til Láru og Eldvígslan gerðu. Líklega er íslenzkri afdalamennsku minni um að kenna; ef til vill hef ég orðið fyrir of miklum áhrifum af amerísku almenningsáliti til að geta áttað mig á mismuninum á þeirn „rússnesku og germönsku týrönnum“ (bls. 52-3). Þetta er mjög kurteislega orðuð áminning til eins af aðdáendum Stalíns, um að Stalín sé engu betri en Hitler. Stefán birti eins og fyrr var getið fjögur umfangsmikil yfirlitsrit yfir íslenska bókmenntasögu eða þætti hennar. History oflcelandic Prose Writers 1800-1940 er að hluta til byggð á þeim rannsóknum sem birtust í Skáldaþingi, en eðli bókanna er ólíkt, í History er að vonum miklu meiri almenn menningar- og bókmenntasaga, miklu fleiri höfunda er getið en minna fjallað um hvem hinna merkustu en í Skáldaþingi. í History of lcelandic Literature færði Stefán heldur betur út, eða aftur, kvíamar, nýtt efni miðað við fyrri rit er frá landnámi til 1800. Um miðaldaefnið hafði að vísu verið mikið skrifað, og þar var úr miklu að moða, en lítið um tímabilið 1400-1800. Rannsóknir á bókmenntum þess tíma skildu eftir sig spor í ýmsum tímaritsgreinum Stefáns. Aðeins Ijómm ámm seinna birtist Islensk bókmenntasaga 874-1960. Stofninn er þýðing ensku bókmenntasögunnar með talsverðum viðbótum auk breytinga sem miðast við annan lesendahóp en hinn alþjóðlega. Það var djarft af Stefáni, sem búið hafði svo lengi íjarri íslandi, að láta sögu sína ná alveg til nýjasta samtíma, enda vakti sá þáttur ýmiss konar gagnrýni, suma réttmæta, aðra af því tagi sem allar samtímabókmenntasögur fá: „Af hverju var ég ekki með? Af hverju var ekki meira um minn eftirlætishöfund?“ Síðasta yfirlitsverk Stefáns var Austfirskskáldog rithöfundar 1964. Þar er dregið saman úr heimildum mikið efni sem áður hafði ekki birst á prenti. Geysimargra skálda og manna sem skáldaorð fór af er þar getið. Um marga mætti segja eins og Vilmundur Jónsson sagði í bréfi 99
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.