Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2013, Page 118
Múlaþing
Aksturslag
Stefán var hæglátur og yfirlætislaus maður og
almennt löghlýðinn, en sumar gjörðir hans fóru ekki
alveg saman við það sem lög gera ráð fyrir. Þannig
tók hann takmarkað tillit til umferðarreglna og fannst
þær eiga svona mátulega vel við sig. Stundum lagði
hann bílnum sínum á bannsvæði ef það hentaði og
ók svo hægt, eða varði svo löngum tíma í að beygja
fyrir hom, að klesst var aftan á hann. Flestar sektir
Stefáns vom einmitt til komnar vegna bílsins, þó svo
að hann hafi t.d. líka verið sektaður fyrir að ganga
um með vasahníf með óleyfilega löngu blaði. Hann
var því húsgangur á lögreglustöðinni til að borga
sektir sínar. En aldrei kvartaði hann... svona fyrir
utan það að honum fannst það tímasóun að þurfa að
fara niður á lögreglustöð dag eftir dag til að borga
sektir. Haraldur Bessason, fyrrverandi prófessor í
Winnipeg og háskólarektor á Akureyri, segir á rnjög
skemmtilegan hátt ffá ferð Stefáns frá Baltimore til íþöku í Bréfum til Brands en þó ber að
nefna að hann tekur fram að ekki sé allt í bókinni óskreyttur sannleikur. Hér er stytt og eilítið
umorðuð lýsing hans:
Stefán lét vel af ferð sinni, sagðist ekki
hafa verið stöðvaður nema þrisvar af
vegalögreglunni. Það væri bót frá síð-
ustu ferð hans þegar hann hafði lent
í þremur árekstrum, eða réttara sagt
að það hafði verið keyrt þrisvar aftan
á bílinn hjá honum. Stefán ók alltof
hægt á vegum úti og þess vegna var ekki
sjón að sjá bílinn hans að aftanverðu.
Þó að reynt hefði verið að laga verstu
dældirnar var ekkert áhlaupaverk að
opna skottið eða loka því.
Teikning Stefáns af Margréti móður hans.
Vinurinn Ríkharður Beck
Meðal bestu vina Stefáns vestanhafs vom skáldið og kennarinn Ríkharður Beck (eða Richard
Beck) og Halldór Hermannsson bókavörður við Fiske safnið í Comellháskóla. Það sem er
merkilegt við vinskap Stefáns og Ríkharðs er að Ríkharður Beck var fæddur 9. júní 1897 að
Svínaskálastekk við Reyðarfjörð, þ.e. sama dag, sama ár og í sömu sýslu og Stefán. Þrátt fyrir
þetta kynntust þeir ekki fyrr en í Bandaríkjunum. Ríkharður var sonur Hans Kjartans Beck og
Þómnnar Vigfúsínu Vigfúsdóttur. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík
1920 en fluttist svo til Winnipeg 1921 ásamt móður sinni. Ríkharður var fjölmenntaður og
gerðist prófessor í bókmenntum við ýmsa háskóla vestra, þar sem hann bjó alla ævi síðan.
Hann var afkastamikill rithöfundur og birtust oft effir hann greinar og ljóð í íslenskum blöðum.
116