Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2013, Síða 30

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2013, Síða 30
8 samkvæmt fjármögnunarleigusamningum væri hjá þriðja aðila áður en til samningssambandsins stofnaðist.43 Undir framangreind sjónarmið er að vissu leyti tekið í dreifi- bréfi Fjármálaeftirlitsins til lánastofnana dagsettu 14. september 2010. Í bréfinu kemur fram að Fjármálaeftirlitið hafi lagt heildstætt mat á rekstrar-, einka- og fjármögnunarleigusamninga með hliðsjón af þeim atriðum sem Hæstiréttur lagði til grundvallar við mat á eðli kaupleigusamninganna í málum nr. 92/2010 og 153/2010. Niðurstaða Fjármáleftirlitsins var sú að framangreindir eignaleigusamningar „virðast innihalda ákvæði um vexti og uppgjör við riftun sem al- mennt tíðkast ekki í leigusamningum heldur lánssamningum, auk þess sem eignarhald samningsandlags er hjá þriðja aðila áður en til samningssambands stofnast.“ Þá segir í bréfinu að lög nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. 3. tölul. 1. mgr. 3. gr. laganna, geri engan greinarmun á eignaleigusamningum eftir því hvort leigutaki eða leigusali eignist hið leigða við lok samningstímans. Í ljósi framan- greinds beindi Fjármálaeftirlitið þeim tilmælum til lánastofnana að á meðan ekki hafi endanlega verið skorið úr um hvort rekstrar-, einka- og fjármögnunarleigusamningar falli undir gildissvið VI. kafla vxl. og hvort þeir innihaldi óskuldbindandi gengistrygging- arákvæði, skuli meðferð slíkra eignaleigusamninga vera með sama hætti og kaupleigusamninga viðkomandi lánastofnana.45 Þau íslensku fjármálafyrirtæki, sem buðu upp á fjármögnunar- leigu, kusu hins vegar að fara ekki eftir tilmælum Fjármálaeftirlits- ins og bentu á að sitthvað væri með öðru móti hvað varðar fjár- mögnunarleigusamninga samanborið við kaupleigusamninga sem ætti að leiða til gagnstæðrar niðurstöðu en þeirrar sem komist var að í málum nr. 92/2010 og 153/2010. Þau atriði, sem einkum var bent á í þessu sambandi, var annars vegar að í lok síðustu leigugreiðslu samkvæmt kaupleigusamningi skyldi leigusali gefa út afsal til skuldara en slík sjálfkrafa eignaréttaryfirfærsla ætti sér ekki stað í 43 Í athugasemdum með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 19/1989 um eignarleigu kemur m.a. fram að það sé fyrst og fremst vegna skattareglna sem reynst hafi nauðsynlegt að skilgreina kaupleigu sérstaklega þannig að ljóst sé í lögum hver sé greinarmunurinn á fjármögnunarleigu og hinni sérstöku tegund fjármögnunarleigusamninga, sem kaupleig- an er innan þess flokks eignarleigusamninga. Verði hins vegar stefnt að því að gera skatta- lega meðferð fjármögnunarleigu ætíð hina sömu, óháð því hvaða skilmálar eru í fjármögn- unarleigusamningunum, verður hinn sérstaki greinarmunur, sem þar væri gerður á fjár- mögnunarleigu og kaupleigu, óþarfur í lögum og myndi skýrast af samningnum sjálfum. Gæti þá skilgreining á fjármögnunarleigu verið á þá leið að hún væri óháð því hvort eigna- rétturinn flyttist til leigutaka eða ekki. Alþt. 1988-1989, A-deild, þskj. 2 – 2. mál, bls. 29.  Dreifibréfið er aðgengilegt á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins á vefslóðinni http://www. fme.is. 45 Fjármálaeftirlitið hefur heimild á grundvelli 2. mgr. 8. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi til að gefa út og birta opinberlega slík almenn leiðbeinandi tilmæli um starfsemi eftirlitsskyldra aðila enda varði málefnið hóp eftirlitsskyldra aðila.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.