Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2013, Side 32

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2013, Side 32
0 niður þótt notkun hins leigða stöðvaðist vegna tjóns eða bilunar á því. Samkvæmt þessu hafi því ekkert samhengi verið milli greiðslna K og af- nota hans af samningsandlaginu. Ennfremur er vísað til þess að reglur skil- málanna um uppgjör vegna riftunar samrýmdust á engan hátt reglum um uppgjör við slit fjármögnunarleigusamnings, enda félli greiðsluskylda ekki niður við riftun. Í dóminum er jafnframt vikið sérstaklega að því að einn helsti skilsmunur kaupleigusamninga annars vegar og fjármögnunar- leigusamninga hins vegar sé sá að með kaupleigusamningi eignist leigu- taki þann hlut sem er andlag samningsins við lok samningstíma eða eigi kauprétt að honum en við lok lágmarksleigutíma fjármögnunarleigusamn- ings verði leigutaki ekki eigandi hlutarins án þess að til frekari samninga komi. Greinarmunur í þessa veru hafi verið gerður í 13. gr. hinna almennu skilmála í fjármögnunarleigusamningi aðila þar sem kveðið var svo á að við lok lágmarkssamningstíma samningsins framlengdist hann um óákveð- inn tíma væri honum ekki sagt upp. Skyldi leigutaki þá greiða ársfjórð- ungslega leigugjald sem tilgreint var í 5. lið samningsins. K hélt því fram í málinu að þrátt fyrir þetta samningsákvæði hafi verið samið um það frá upphafi viðskipta sem þessara milli samningsaðila að K myndi eignast tæki þau, sem fjármögnuð hafi verið með samningum aðila, í samningslok gegn fyrir fram ákveðinni greiðslu. Þessi háttur hafi í raun ætíð verið hafð- ur á í umfangsmiklum viðskiptum aðila. Niðurstaða Hæstaréttar varð sú að með framlögðum gögnum hefði G fært sönnur á að þrátt fyrir texta 13. greinar b. í samningi aðila frá 16. ágúst 2007 hefði verið um það samið að K eignaðist umrædda vinnuvél gegn fyrir fram ákveðinni greiðslu í lok samningstíma. Þá segir í dómi réttarins að þegar framangreind atriði séu virt í heild verði að telja að þótt umræddur samningur frá 16. ágúst 2007 hafi verið nefndur fjármögnunarleigusamningur væri það heiti nafnið tómt. Yrði að líta svo á að í raun hafi G veitt K lán til kaupa á vinnuvél sem bankinn kaus að klæða í búning leigusamnings. Yrði því lagt til grundvall- ar að hér hafi verið um að ræða lánssamning í skilningi VI. kafla laga nr. 38/2001. Af reifun tilvitnaðs dóms má ráða að við túlkun Hæstaréttar á efni fjármögnunarleigusamningsins lítur rétturinn m.a. til þess sem ætla má að felist í samningnum eða leiði af samningnum þótt ekki komi fram berum orðum í skilmálum samningsins að samið hafi  Minnihluti Hæstaréttar (1 dómari) komst að gagnstæðri niðurstöðu og taldi samning- inn vera um leigu. Í sératkvæðinu er m.a. á það bent að í atkvæði meirihlutans séu nefnd atriði sem talin eru benda til þess að um kaupleigu sé að ræða en ekki fjármögnunarleigu. Ekkert af þeim atriðum skipta máli að mati minnihlutans eins og nánar er rökstutt í sér- atkvæðinu. Þá segir orðrétt: „Sá sem byggir á því að víkja eigi frá efni samnings og breyta því frá því sem samningur kveður á um berum orðum, ber þungann af sönnunarbyrði um atvik sem þessu eiga að valda. Varnaraðili hefur að mínum dómi ekki teflt neinu fram sem getur haft þess háttar áhrif á samning málsaðila. [...] Engin lagarök standa til þess að mín- um dómi að gefa samningi málsaðila, á forsendum sem tengjast þessu, annað efni en þeir sjálfir gerðu. Það eru með öðrum orðum engin efni til að breyta meginefni samningsins, sem báðir samningsaðilar voru sammála um hvert væri, úr því að vera um fjármögnunar- leigu yfir í að vera um kaupleigu“.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.