Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2013, Side 34

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2013, Side 34
 undir gildissvið VI. kafla vxl. eða leigusamningur sem félli utan gildissviðs nefnds kafla. Niðurstaða Hæstaréttar gekk í gagnstæða átt við niðurstöðu réttarins í máli nr. 282/2011. Hrd. 652/2011 (Smákranar II). Hinn 31. október 2007 gerðu S og L með sér samning um fjármögnun á vinnuvél, svokölluðum smákrana. Í máli, sem S höfðaði á hendur L, var krafist endurgreiðslu fjár sem félagið taldi sig hafa ofgreitt á grundvelli fjármögnunarleigusamnings milli aðila. Ágreiningur málsaðila snerist einkum um hvort samningurinn, sem um ræddi, væri láns- eða leigusamningur. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu í mál- inu að samningur aðila væri eftir efni sínu ekki leigusamningur heldur lánssamningur í skilningi VI. kafla laga nr. 38/2001. Hæstiréttur var hins vegar á annarri skoðun og taldi að samningurinn væri leigusamningur. Í dómi Hæstaréttar segir orðrétt: „Samningurinn, sem mál þetta varðar, er í ýmsum atriðum frábrugðinn samningnum, sem fjallað var um í dómi Hæstaréttar í máli nr. 282/2011. Þannig eru stöðluð ákvæði samningsins í þessu máli skýr og eiga eingöngu við um fjármögnunarleigusamninga. Þá er í samningi málsaðila fjallað um leigu og er áfrýjandi þar ítrekað nefndur leigusali. Eins og nánar er rakið í héraðsdómi eru á hinn bóginn nokkur ákvæði í samningnum, sem eru hliðstæð samningnum sem dómur í máli nr. 282/2011 tók til. Þannig er áfrýjanda heimilað að reikna leigugjald til samræmis við breytingar, sem kunna að verða á millibankavöxtum af jap- önskum yenum og svissneskum frönkum, stefndi ber sem leigutaki áhættu af því að hið leigða farist, skemmist eða rýrni og honum er að auki skylt að greiða fjárhæð, sem svarar til leigu til loka samningstíma að frádregnu matsverði hins leigða, ef samningnum verður rift. Milli þessara tilvika skil- ur þó um það meginatriði að gagnstætt því, sem var í máli nr. 282/2011, er ósannað í máli þessu að samið hafi verið um að stefndi myndi eignast hið leigða gegn ákveðinni greiðslu við lok leigutímans og liggur því ekki ann- að fyrir en að á því tímamarki stofnist ótímabundinn leigumáli gegn veru- lega lægra gjaldi, sem stefnda er heimilt að segja upp með eins mánaðar fyrirvara ásamt því að skila hinu leigða, svo sem nánar er mælt fyrir um í samningi aðilanna. Að þessu athuguðu er ekki annað leitt í ljós en að samn- ingurinn sé um fjármögnunarleigu, eins og heiti hans bendir til. Af þessum sökum girða ákvæði VI. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu ekki fyrir að aðilunum hafi verið heimilt að semja um að leigugjald í við- skiptum þeirra taki mið af breytingum á gengi erlendra gjaldmiðla. Áfrýj- andi verður því sýknaður af kröfu stefnda.“ Hæstiréttur bendir réttilega á það í dóminum að fjármögnunar- leigusamningurinn í máli nr. 652/2011 (Smákranar II) og fjármögn- unarleigusamningurinn í máli nr. 282/2011 (Kraftvélar) eru frá- brugðnir að því leyti að hinir almennu skilmálar í síðarnefnda samningsforminu tóku jöfnum höndum til kaupleigu- og fjármögn- unarleigusamninga, nema annað væri tekið sérstaklega fram, en fyrrnefnda samningsformið gilti eingöngu um fjármögnunarleigu- samninga. Þá taldi Hæstiréttur stöðluð ákvæði samningsformsins í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.