Tímarit lögfræðinga - 01.04.2013, Blaðsíða 40
8
einkaleigusamninga er gjarnan gerður kaupsamningur milli leigu-
taka og seljanda, þar sem seljandi skuldbindur sig til að kaupa samn-
ingsandlagið aftur af leigutaka að samningstíma liðnum.
Greina má einkaleigusamninga í tvo flokka eftir því hver réttar-
staða leigutaka er samkvæmt skilmálum samnings í lok samnings-
tíma. Annars vegar er um að ræða hefðbundna einkaleigu þar sem
leigutaka ber samkvæmt skilmálum samningsins að skila samn-
ingsandlagi til seljanda í lok samningstíma. Hins vegar er um að
ræða svonefnda „einkaleigu með kauprétti“ þar sem kveðið er á um
kauprétt leigutaka að samningsandlagi í lok samningstíma, að
ákveðnum skilyrðum uppfylltum, og yfirleitt á fyrir fram ákveðnu
verði. Við lok einkaleigusamninga með kauprétti eignast leigutaki
því samningsandlagið, að öðrum skilyrðum uppfylltum, en á sölu-
rétt á hendur seljanda.
Enn hefur ekki komið til kasta íslenskra dómstóla mál þar sem
reynt hefur á lögmæti gengisbindingar einkaleigusamninga en fyrir
liggja þrír úrskurðir úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármála-
fyrirtæki. Um er að ræða úrskurði nefndarinnar í máli nr. 53/2011
sem kveðinn var upp hinn 1. nóvember 2011, í máli nr. 67/2011 sem
kveðinn var upp hinn 20. janúar 2012 og í máli nr. 95/2011 sem kveð-
inn var upp hinn 17. apríl 2012.
Ótvírætt má ráða af tilvitnuðum úrskurðum að það sem einkum
ræður úrslitum um það hvort einkaleigusamningarnir töldust vera
samningar um lán eða leigu eru ákvæði samningsskilmálanna um
réttarstöðu leigutaka við lok samningstíma. Þannig kemst úrskurð-
arnefndin einróma að þeirri niðurstöðu í málum nr. 53/2011 og
67/2011 að einkaleigusamningar með kauprétti, sem þar var um
deilt, væru í eðli sínu lánssamningar. Úrskurðarnefndin klofnaði
hins vegar í máli nr. 95/2011 þar sem deilt var um hefðbundinn
einkaleigusamning. Þannig taldi meirihluti nefndarmanna (3 af 5)
að samningurinn væri um leigu en ekki lán, en minnihlutinn leit
svo á að eignaleigufyrirtækið hafi veitt lán til kaupa á bifreið og
klætt þann gerning í búning leigusamnings.
Unnt er að taka undir niðurstöður úrskurðarnefndarinnar í mál-
um nr. 53/2011 og 67/2011. Einkaleigusamningum með kauprétti
svipar um margt til kaupleigusamninga og því eðlileg nálgun hjá
úrskurðarnefndinni, við mat á eðli einkaleigusamninganna, að
horfa til þeirra atriða sem réðu úrslitum í dómum Hæstaréttar 16. júní
2010 í málum nr. 92/2010 og 153/2010. Niðurstaða Hæstaréttar í báð-
um málunum varð sú, eins og áður er rakið, að kaupleigusamning-
arnir, sem um var deilt, væru lánssamningar „klæddir í búning“