Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2013, Síða 41

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2013, Síða 41
 leigusamninga. Ekki verður annað séð en að hið sama eigi við um einkaleigusamninga með kauprétti.60 Hinir hefðbundnu einkaleigusamningar, sem um er getið hér að framan, hafa hins vegar meiri líkindi með rekstrarleigusamningum. Hefðbundnir einkaleigusamningar bera vissulega mörg einkenni leigusamninga en einnig er í slíkum samningum að finna mörg samningsákvæði sem samrýmast því vart að um leigu geti verið að ræða. Þó að vissulega sé erfitt að gera sér í hugarlund hver niður- staða dómstóla yrði um slíka samninga verður að telja, með hliðsjón af dómafordæmum Hæstaréttar í málum nr. 92/2010, 153/2010 og enn frekar í málum nr. 282/2011 og 652/2011, að meiri líkur séu á að slíkir samningar teljist fremur vera um leigu en lán enda umsamið að skila beri samningsandlagi til seljanda í lok samningstíma. Fyrir liggur að þau eignaleigufyrirtæki, sem buðu upp á valkost um einkaleigu, hafa ekki fallist á að slíkir samningar séu í eðli sínu lánssamningar og gildir þá einu hvort um hefðbundna einkaleigu- samninga er að ræða eða einkaleigu með kauprétti. Það er því ljóst að til þess að eyða óvissu um raunverulegt eðli einkaleigusamninga þarf að fá niðurstöðu dómstóla um álitaefnið. Dómsmál er nú rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, þegar þetta er ritað, þar sem reyna mun á lögmæti gengisbindingar í einkaleigusamningi með kaup- rétti. Að öllu forfallalausu ætti dómur í því máli að líta dagsins ljós fyrir réttarhlé 2013.61 4.3 Hvenær er lánsfé í „íslenskum krónum“ í skilningi VI. kafla vxl? Líkt og áður er rakið er gildissvið VI. kafla vxl. bundið við sparifé og lánsskuldbindingar í íslenskum krónum. Í þessu felst m.a. að lán í erlendri mynt falla ekki undir reglur um heimildir til verðtrygg- ingar í íslenskum krónum í VI. kafla vxl. Sá aragrúi samningsskil- mála, með mismunandi orðalagi, sem í notkun voru hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum fyrir efnahagshrunið hafa gert það að verkum að mörg dómsmál hafa verið rekin þar sem deilt hefur verið um hvort tiltekin skuldbinding sé í íslenskum krónum eða erlendri mynt eða myntum eftir atvikum. Lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu svara því ekki hve- nær tiltekin skuldbinding telst vera í íslenskum krónum eða erlendri mynt. Úrlausn um þetta ræðst því af atvikum hverju sinni. Hvorki í 60 Þessu til stuðnings skal á það bent að í samningsskilmálum einkaleigusamninga með kauprétti er iðulega að finna ákvæði þar sem beinlínis er tekið fram að viðkomandi samn- ingur „sé í eðli sínu kaupleigusamningur“. 61 Ef einkaleigusamningar teljast falla í flokk eignaleigusamninga þá felur það í sér að einkaleigusamningar, sem einstaklingar hafa gert við fjármálafyrirtæki vegna kaupa á bif- reiðum til einkanota, falla samkvæmt X. ákvæði til bráðabirgða við lög nr. 38/2001, sbr. 2. gr. laga nr. 151/2010, undir gildissvið 18. gr. laga nr. 38/2001, sbr. 1. gr. laga nr. 151/2010.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.