Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2013, Page 51

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2013, Page 51
 greindur sem „jafnvirði“ tiltekins fjölda íslenskra króna, að helm- ingi í svissneskum frönkum og helmingi í japönskum jenum. Í báð- um tilvikum voru gefnar út, í tengslum við útborgun lánanna, svonefndar kaupnótur þar sem fram kom að lántakar hafi selt bank- anum tilgreindar fjárhæðir í japönskum jenum og svissneskum frönkum sem umreiknaðar hafi verið í íslenskar krónur og þær lagðar inn á tékkareikninga viðkomandi lántaka hjá bankanum. Þá lá fyrir að bankinn hafði á hverjum gjalddaga reiknað út fjárhæð hverrar afborgunar í japönskum jenum og svissneskum frönkum og reiknað yfir í íslenskar krónur og krafið lántaka um greiðslu í ís- lenskum krónum. Hæstiréttur, sem í báðum málunum var skipaður þremur dóm- urum, klofnaði í afstöðu sinni til sakarefnisins. Niðurstaða meiri- hluta Hæstaréttar var sú í báðum málunum að lánssamningarnir, sem um var deilt, væru um skuldbindingu í íslenskum krónum sem væri verðtryggð með því að binda hana við gengi erlendra gjald- miðla. Sökum þess að kröfur bankans á hendur lántakendum voru ekki reifaðar með tilliti til þess að lánsskuldbindingarnar væru í ís- lenskum krónum var málunum vísað frá dómi vegna vanreifunar. Minnihluti Hæstaréttar (einn dómari) taldi hins vegar rétt, með vís- an til þess að í hinum kærðu úrskurðum hefði verið farið út fyrir þau mörk sem dómstólum væri falið þegar um útivistarmál er að ræða, að fella hinn kærða úrskurð úr gildi og leggja fyrir héraðs- dóm að taka málið til efnislegrar meðferðar og dómsálagningar. 4.3.2.3 Dómur Hæstaréttar 9. júní 2011 í máli nr. 155/2011 Kjarninn í ágreiningi málsaðila í dómi Hæstaréttar 9. júní 2011 í máli nr. 155/2011 (Motormax) var sá hvort lánsskuldbindingin, sem inni- hélt svonefnt „jafnvirðisorðalag“, fæli í sér ólögmæta gengistrygg- ingu eða ekki. Um var að ræða sams konar lánsskilmála og finna mátti í samningunum sem um var deilt í dómum Hæstaréttar 8. mars 2011 í málum nr. 30/2011 (GSP Ráðgjöf) og 31/2011 (Rósa o.fl.) Í fyrri gengistryggingardómum Hæstaréttar hafði rétturinn að- eins tekið afstöðu til lögmætis gengisbindingar í kaupleigusamn- ingum, svonefndum bílasamningum, og hins vegar skuldabréfum með fasteignaveði, sbr. þó áðurnefnd mál nr. 30/2011 og 31/2011. Dóms Hæstaréttar í máli nr. 155/2011 var beðið með talsverðri eftir- væntingu enda hafði þeim röksemdum verið hreyft að önnur sjónar- mið kynnu að eiga við um lánssamninga heldur en skuldabréf og kaupleigusamninga. Hefðbundnir lánssamningar innihéldu enda alla jafna ítarlegri ákvæði en t.d. skuldabréf sem væru viðskiptabréf sem hafa að geyma tæmandi lýsingu á þeim réttindum sem slík bréf veita og almennt væru útbúin þannig að þau geti gengið kaupum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.