Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2013, Qupperneq 81

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2013, Qupperneq 81
 ins bundið við málsmeðferðarreglur og tilteknar efnisreglur sem ná ekki yfir öll þau sérstæðu álitaefni sem rísa við veitingu heilbrigðis- þjónustu, s.s. varðandi sjálfsákvörðunarrétt sjúklings, trúnað o.fl. Á sama tíma var hinn einkaréttarlegi samningur læknis og sjúklings að mestu horfinn út úr myndinni og sjúklingi því aðeins takmörkuð vernd í þeim leifum af samningsskyldum læknis sem birtust í skaðabótaréttarlegri starfsábyrgð þeirra. Má því segja að hvorki hinn opinberi réttur (stjórnsýsluréttur og refsiréttur) né einkarétt- urinn (samningaréttur og skaðabótaréttur) hafi veitt sjúklingum nægjanlega réttarvernd.12 Réttarþróun brást við þessu á þann hátt að þessi þríhliða mynd var fyllt nánar með heildstæðum lagabálk- um sem útfærðu réttarstöðu allra viðkomandi með ítarlegum hætti, m.a. í löggjöf um réttindi og skyldur hinna ýmsu starfsstétta í heil- brigðisþjónustu, sbr. nú lög um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012, lögum um heilbrigðisþjónustu, sbr. nú lög nr. 40/2007, lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 og lögum um sjúklingatryggingu nr. 111/2000. Norrænn heilbrigðisréttur byggir að grunnstofni til á hugmynd- inni um velferðarsamfélagið en það er sameiginlegt einkenni hans að lögð er áhersla á jafnan og almennan aðgang allra að heilbrigð- isþjónustu sem er fjármögnuð af hinu opinbera.13 Á síðari árum hef- ur einkaréttarlegur rekstur þó aukist mjög á öllum Norðurlönd- unum, bæði þannig að einkaaðilar veita þjónustu sem eftir sem áður er fjármögnuð af hinu opinbera (einkarekstur), en einnig þannig að heilbrigðisþjónusta er veitt utan við hið opinbera heilbrigðiskerfi (einkavæðing).14 Eitt einkenna þessa sviðs mannlegs lífs er einnig það að þekkingarþróun á sviði heilbrigðisvísinda hefur verið afar hröð, einkum frá því undir lok 20. aldar. Ný tækni og nýjar aðferðir sem á stundum snerta grundvallarspurningar um mannlega tilvist (tæknifrjóvgun, stofnfrumulækningar, klónun o.s.frv.) kalla á reglu- bindingu.15 Bæði er það praktískt úrlausnarefni hvort veita beri til- tekna þjónustu á kostnað ríkisins þegar nýir möguleikar opnast, en 12 Asbjørn Kjønstad: Helserett, bls. 30. 13 Mette Hartlev: „The raison d‘être of Nordic Health Law“, bls. 66. 14 Elisabeth Rynning, Oddný Mjöll Arnardóttir, Mette Hartlev, Henriette Sinding-Aasen og Sirpa Soini: „Recent Developments in Nordic Health Law“. European Journal of Health Law 2010, bls. 1-16, á bls. 4 (Danmörk), 6 (Finnland), 8 (Ísland), 11 (Noregur) og 13 (Sví- þjóð). Samkvæmt óbirtum rannsóknargögnum sananburðarrannsóknar sem liggur til grundvallar grein Mette Hartlev: „The raison d‘être of Nordic Health Law“ (gögnin eru aðgengileg hjá höfundi samkvæmt beiðni) er í Danmörku og Noregi t.d. í auknum mæli hægt að kaupa heilbrigðisþjónustutryggingar á einkamarkaði sem getur haft þau áhrif að þeir sem njóta slíkra trygginga hafi greiðari aðgang að heilbrigðisþjónustu en aðrir. Í Sví- þjóð hafa verið sett sérstök lög sem tryggja sjúklingum frjálst val á milli einkarekinna og opinberra veitenda grunnheilbrigðisþjónustu og annarrar velferðarþjónustu, sjá Lagen (2008:962) om valfrihetssystem. 15 Sjef Grevers: „Health Law in Europe: From the Present to the Future“, bls. 264.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.