Jökull


Jökull - 01.01.2021, Síða 136

Jökull - 01.01.2021, Síða 136
Einar B. Pálsson sóknaverkefni. Reynsla hafði nú sýnt okkur, hvað þar er mikið erfiði að komast með nauðsynlegan viðlegu- og rannsóknabúnað upp á jöklana, einkum Vatnajök- ul. Allar jökulár umhverfis hann voru óbrúaðar og vegslóðar nær engir. Ferðagarpar á Akureyri höfðu þá í nokkur ár kannað Ódáðahraun. Og nú voru að koma hér í gagnið torfærubílar sem setuliðið kaus að losa sig við, þegar sjá mátti fyrir lok heimstyrjaldarinnar. Við höfðum farið á Vatnajökul að sunnan sumarið 1942. Okkur þótti nú forvitnilegt , hvernig aðkoma á bíl væri að norðanverðu. Við fréttum að Ferðafélag Akureyr- ar ráðgerði að reyna ökuleið suður að jöklinum um Suðurárbotna og Dyngjufjalladal, en áður hafði jafn- an verið farið um Herðubreiðarlindir. Við Kristín Pálsdóttir, kona mín og Leó Eggerts- son, sem verið hafði með okkur í fyrsta leiðangrinum á Mýrdalsjökli, fengum að taka þátt í þessum leið- angri Akureyringa. Við kynntumst þá afbragðsdug- legu ferðafólki úr Ferðafélagi Akureyrar. Formaður þess, Þorsteinn Þorsteinsson, var fararstjóri. Það tókst að aka sæmilega greiðlega alla leiðina frá Mývatni suður að rönd Dyngjujökuls, þar sem vestasta upptakakvísl Jökulsár á Fjöllum kemur undan honum við Urðarháls. Ferðafélagar okkar töldu þetta vera fyrsta sinn, sem það hefði verið gert. Við geng- um upp á jökulbrúnina. Hún var há, brött og mjög sandborin. Þegar við snérum heim til Reykjavíkur, flugum við í fyrsta sinn á ævinni. Flugvélin var Catalina- flugbátur. Hann tók sig á loft frá pollinum á Akureyri og lenti á Skerjafirði. Flugvellir voru fáir á landinu. Um þessar mundir frétti Steinþór um nýlegt fararæki í Kanada, vélsleða. Tveir slíkir voru síðan keyptir til landsins, annar fyrir Rannsóknaráð ríkisins en hinn sleðann keypti hópur áhugamanna úr Skíða- félagi Reykjavíkur, sem venjulega var nefndur „Litla skíðafélagið“ og fór m.a. skíðaferðir inn í óbyggðir á páskum. Þetta voru sleðar, því sléttur botninn hvíldi á snjónum og rann á honum. Drifkraft fékk sleðinn frá vélknúnu belti, sem lá í rauf á sleðabotninum. Mátti þrýsta drifbeltinu niður í snjóinn með „gírstöng“, mis- jafnlega fast eftir aðstæðum, svo að það næði hæfi- legu taki á snjónum. Vorið 1946 æfðum við okkur að nota vélsleða Rannsóknaráðs á graslendi við sum- arbústað minn hjá Keldum í Mosfellssveit. Það gekk vel. Þá voru jeppar komnir til sögu á Íslandi og fáeinar jeppakerrur, sem voru engu síður nýjung en jepparnir. Jeppakerra hentaði vel til þess að flytja vélsleðann. Nú var gerð áætlun um að fara á Vatnajökul norð- anfrá með því að aka á jeppum með vélsleðann norður og síðan inn að Dyngjujökli, eins og áður var lýst, og freista þess að koma sleða og farangri upp á jökulinn með því að ryðja „veg“ upp bratta, sandborna jökul- brúnina. Áður en til þessa kom, fréttum við, að annar hópur sunnanmanna hefði þá um vorið ekið á þenn- an hátt á tveimur jeppum upp jökulbrúnina og um 14 km inn á jökulinn og síðan sömu leið til baka. Þetta mun hafa verið fyrsta bílferð á jökli hér á landi. Þar voru á ferð þrír skíðakappar, Árni Stefánsson, Egill Kristbjörnsson og Friðþjófur Hraundal ásamt Jóhann- esi Áskelssyni jarðfræðingi. Við fórum okkar ferð í ágústmánuði 1946. Auk okkar Steinþórs voru í leiðangrinum Sigurður Þórar- insson og þrír skíðafélagar okkar, Árni Stefánsson, Einar Sæmundsson og Egill Kristbjörnsson. Við höfð- um tvo jeppa ásamt kerrum og Ford-drossíu Egils. Steinþór var fararstjóri. Á annarri jeppakerrunni stóð eldrauður vélsleðinn, á hinni var bensíntunna, skíði, Nansensleði og útileguútbúnaður. Þetta þótti nýstár- leg sjón á bílastæðinu við Hótel KEA á Akureyri. Við gistum þar í báðum leiðum. Ferð okkar frá Grænavatni í Mývatnssveit suður Ódáðahraun og Dyngjufjalladal að Dyngjujökli gekk eins og í sögu. Við ókum alveg að jöklinum og hófum strax að gera „veg“ upp bratta jökulbrúnina. Í miðju verki varð einum okkar litið niður til bílanna á sand- inum svarta – og sá að eitthvað var að. Drossían stóð nú í polli og var að sökkva í sandbleytu, sem myndast hafði. Nú dugði ekkert minna en snörustu handtök, sem til voru. Okkur tókst að bjarga bílnum úr svað- inu og koma honum á betri stað til geymslu. Hefði þetta atvik ekki komið fyrir, þá er óvíst að við hefðum fundið drossíuna „ofan sands“, er við komum til baka af jöklinum viku síðar. Jepparnir tveir með kerrurnar í eftirdragi komust klakklaust eftir einkavegi okkar upp á skriðjökuls- brúnina. Sá akstur var ekki neinn barnaleikur, en öku- meistararnir Árni Stefánsson og Einar Sæmundsson létu lítt yfir sér. Svo stigum við hinir upp í og nú ókum við á ósléttum ís Dyngjujökuls 18 km inn á jökulinn. 134 JÖKULL No. 71, 2021
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.