Úrval - 01.04.1948, Blaðsíða 23
LENXN OG TROTSKI 1 LONDON
21
næst ættu verkamenn að halda
áfram baráttuni fyrir sósíalisma
í demókratisku lýðveldi. Bolsé-
víkamir, undir forystu Lenins,
höfnuðu fyrirlitlega skoðuninni
um bandalag við frjálslynda, og
trúðu því, að með hjálp bænd-
anna gætu þeir stefnt rakleitt
að sósíalistiskri byltingu.
Ég þekkti nokkra meðlimi
þessa flokks. Einn þeirra, sem
þá var landflótta, var Ivan Mai-
sky. Annar var Vera Zasulich.
I útliti líktist hún fallegri, aldr-
aðri hefðarkonu Viktoríutíma-
bilsins. Hún var fræg fyrir eitt-
hvert djarfasta tilræðið, sem um
getur í hinni löngu sögu rúss-
neskrar frelsisbaráttu. Árið
1878 skaut hún Trepov hers-
höfðingja, landstjóra í Péturs-
borg, af því að hann hafði látið
húðstrýkja pólitíska fanga.
Furðulegasti þáttur sögu henn-
ar var, að rússneskur kviðdóm-
ur sýknaði hana. Ég kynnti hana
eitt sinn biskupnum af Here-
ford, göfuglyndum guðsmanni,
og ég held, að hann hafi líka
sýknað hana. Þriðji vinur minn
úr þessum flokki var Fedor
Rothstein, duglegur blaðamað-
ur. Hann var sonur velþekkts
rússnesks læknis og hafði kom-
ið með landflótta föður sínum
til London, þegar hann var á
unga aldri. Eftir byltinguna
skipaði hann háa stöðu í utan-
ríkisráðuneytinu og varð seinna
ritstjóri hinnar nýju, rússnesku
alfræðibókar.
Og nú kem ég að fundum mín-
um við Lenin og Trotski. Um
þessar mundir vann ég sem
blaðamaður við Daily News, er
nú heitir News Chronicle.
Snemma morguns í maí 1907
kom Fedor Rothstein inn í skrif-
stofuna til mín og var sýnilega
mikið niðri fyrir, — hann vann
einnig við blaðið. Hann hafði
engan formála, en bað mig að
útvega strax að láni eða gjöf
500 sterlingspund. Og til hvers
haldið þið? Rússneski Sósíalde-
mókrata flokkurinn hafði brýna
þörf fyrir peningana, tafarlaust.
Hann sagði mér, að þing flokks-
ins stæði yfir í New Southgate
í norðurúthverfum London. Það
var búið að sitja í þrjár vikur,
en nú var því að ljúka, og hin-
ir þrjú hundruð þátttakendur
urðu með einhverju móti að
komast heim til Rússlands. En
flokkssjóðurinn var galtómur.
Ódýrasta leiðin heim var með
skipi og £500 var það minnsta,
sem hægt var að komast af með.
Ég spurði Rothstein, hvernig í