Úrval - 01.04.1948, Blaðsíða 75
VITGRANNIR FUGLAR
73.
nokkur kom einn morgun með
fóðrið handa ungunum í stórri
fötu. Á meðan hann var að gefa
þeim, var kallað á hann og skildi
hann tóma fötuna eftir á gólf-
inu í kofanum. Þegar hann kom
aftur, hálf tíma seinna, var fat-
an full af ungum og var megn-
ið af þeim dautt. Einn á fæt-
ur öðrum höfðu þeir hoppað upp
í fötuna af einskærri forvitni,
en höfðu ekki vit á að forða
sér upp úr aftur.
Annar bóndi, sem óttaðist, að
fálkinn mundi valda sér tjóni,
setti nokkra átta feta háa staura
í hænsnagarðinn og kom fyrir
stálgildrum ofan á þeim. Og
veiðin brást ekki, hann fékk einn
kalkún í hverja gildru!
Bóndi í Vermont og kona hans
áttu 2000 kalkúna. Kvöld eitt í
október 1946, fór allur hópur-
inn út á engjablett skammt frá
bænum og bjó um sig þar fyrir
nóttina. Það var rigning og eftir
að dimmt var orðið, hvessti og
talsvert fjúk varð af fölnuðum
iaufblöðum. Meira þurfti ekki til
að valda slysi á hjörðinni. Rétt
fyrir miðnætti heyrðu hjónin,
að fuglarnir voru komnir á kreik
og görguðu í ákafa. Þau fóru
út í storminn og voru að alla
nóttina, og í dögun töldu þau
703 dauða kalkúna. Allir frá-
veituskurðir voru fullir af dauð-
um fuglum, tugir þeirra höfðu
hálsbrotið sig með því að æða á
tré, girðingar og hús. „Furðu-
legast var,“ sagði bóndakonan,
,,að á mörgum hinna dauðu fugla
sáust engir áverkar. Ég býst við,
að þeir hafi dáið úr einskærri
hræðslu."
Ef kalkúnhænsnin eru látin
sjálfráð, verða þau ekki ást-
fangin fyrr en seint í marz. Það
er of seint, ef ungarnir eiga að
vera orðnir ætir fyrir mitt sum-
ar. f janúar og febrúar taka
bændurnir hanana, láta þá inn í
sérstakt skýli og kveikja hjá
þeim rafljós, sem látið er loga
dag og nótt. Tveim vikum síðar
eru hænurnar teknar, og eins
farið með þær. Og tveim vik-
um þar á eftir, nákvæmlega upp
á dag, byrja hanarnir og hæn-
urnar að kalla hvort á annað af
miklum ákafa.
Enginn hefur getað gefið
skýringu á þessum undarlega
áhrifamætti rafmagnsljóssins,
en með því að þetta bregzt aldr-
ei, á hvaða tíma árs, sem það
er gert, er nú hægt að fá kalk-
únunga á öllum árstíðum.
Kalkúnhaninn er ekki í nein-
um vafa um, að hann sé hús-