Úrval - 01.04.1948, Blaðsíða 110
108
tJRVAL
sinnis í þessari einföldu athöfn,
en þær voru svo taugaóstyrkar,
að þeim gekk illa að læra hana.
Það gengu sögur um það í
kvennabúrinu, að allir Englend-
ingar væru skeggjaðir — en það
er viðbjóðslegt í augum skegg-
lausra þjóða — og ennfremur,
að þeir hefðu hræðileg, blá augu,
sem gætu skyggnzt inn í sálir
fórnarlambanna og fært varn-
arlausa anda í eilífa fjötra.
Því fór ver, að John lávarður
var með alskegg, sem náði niður
á bringu og huldi allt andlitið,
nema nef og augu. Þegar stund-
in rann upp og tjaldið var dreg-
ið frá, brá stúlkunum svo í brún,
að þær sátu kyrrar á stólunum,
eins og þær væru negldar niður.
John Hay lávarður var líka
alveg forviða. Hann bjóst alls
ekki við því að sjá Norðurálfu-
konur í kvennabúri Síamskon-
ungs, en vegna rökkursins í
musterinu sá hann stúlkurnar
ógreinilega. Hann setti einglyrn-
ið upp að hægra auganu, til
þess að ganga úr skugga um,
hvort svo væri í raun og veru.
Því næst hneigði hann sig
djúpt og af mikilli kurteisi. 1
stað þess að standa upp og
hneigja sig, ráku stúlkumar
upp hræðsluóp, huldu andlitin í
höndum sér, og horfðu á hann
milli fingranna. Þar sem ófreskj-
an hélt áfram að stara á þær
gegnum einglyrnið, stóðst ein
stúlknanna ekki mátið, en hróp-
aði upp: „Töfraaugað!" 1 sama
bili stukku þær úr sætum sín-
um, sveifluðu pilsunum yfir
höfuð sín, sér til verndar, og
flýðu út úr musterinu.
Anna fékk smávegis snupmr
hjá konunginum fyrir að hafa
ekki sagt stúlkunum frá þessum
enska sið að nota einglymi.
„Konur okkar era svo sið-
prúðar, að þær vilja ekki að
karlmenn horfi á andlit þeirra,'1
sagði hann.
*
Þegar Anna hafði verið um
eitt ár í Síam, var hún búin að
gera sér sæmilega grein fyrir
konungshöllinni og lífinu þar.
Höllin var í raun og vera víg-
girt borg, ferhyrnd í lögun, og
náði yfir einnar fermílu svæði.
I nyrðri hlutanum var aðset-
ur stjórnarinnar. Þar var vopna-
búrið, herbúðir varðliðsins,
stjómarskrifstofur, kauphöllin
og æðsti dómstóllinn. Um þenna
hluta hallarinnar máttu menn
einungis fara í opinberum er-
indum.
Miðhluti hallarinnar, þar sem