Úrval - 01.04.1948, Side 125

Úrval - 01.04.1948, Side 125
ANNA OG SlAMSKONUNGUR 123 Tuptims, og að síðustu var eng- inn, sem dirfðist að svívirða þau. Anna hitti ekki konunginn í mánuð eftir dauða Tuptims. Loks sendi hann eftir henni. Hún hafði aldrei verið eins kuldaleg, hörð og miskunnar- laus og hún var nú. Hann lét sem ekkert væri og fór að tala um Tuptim. „Ég sé mikið eftir Tuptim,“ sagði hann, og það fór ekki fram hjá Önnu, að hann sagði satt. Hann var sorgmæddur á svipinn. ,,Ég trúi því nú, að hún hafi verið saklaus. Mig dreymdi, að ég sæi Tuptim og Palat svífa saman í geimnum, og hún beygði sig niður, snart mig og sagði: „Við vorum hrein og saklaus á jörðinni, og sjá, við erum hamingju- söm nú.“ Ég er sorgbitinn, Mem, ákaflega sorgbitinn, og ég ber virðingu fyrir dómgreind yðar. Ég ætla að láta reisa varða til minningar um þau Tuptim og Palat.“ Og á þeim stað, þar sem þau höfðu dáið, voru reistir tveir háir og grannir chedis að boði konungs, og var á þeim báðum þessi áletrun: „Sólir setjast og koma upp aftur, en hin hreinu og hugrökku Palat og Tuptim munu aldrei hverfa aftur til jarðarinnar.“ Þar sem hann trúði á endalausa hringrás fæð- ingar og endurfæðingar, sem ekki lyki fyrr en í Nirvana, voru orð hans vottur þeirrar sann- færingar hans, að Tuptim og Palat hefðu sloppið við endur- holdgunina, sökum hreinleika síns. O Eftir því sem lengur leið, varð Önnu það æ ljósara, að hana langaði að fara frá Síam. Hún hafði ekki séð Avis dóttur sína í fimm ár, og Louis þurfti að fara að ganga í skóla. Heilsu hennar hafði líka hrakað. Hún var farin að fá hitasóttarköst. Enda þótt konungurinn féllist á að fækka kennslustundum hennar vegna lasleikans, varð hún þó að vinna engu minna en áður fyrir sjálfan hann. Eitt sinn var hún beinlínis í hættu stödd vegna skapofsa konungsins. Þau höfðu orðið ósammála út af bréfi, og skyndi- lega kom einkaritari konungs- ins inn með ákæruskjal, sem hún átti að undirrita. Meðal ákæranna var óhlýðni, vanþakk- læti og „illar hugsanir", og enn- fremur, „að hún hefði gengið yfir höfuð hans hátignar“.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.