Úrval - 01.12.1949, Blaðsíða 9
ALBERT SCHWEITZER
7
Eftir að styrjöldinni lauk, bár-
ust fréttir af því, að þau hjón-
in væru orðin þreytt. Tii þess að
þola hitabeltisloftslagið, verða
Evrópumenn að fara heim ann-
að hvort ár; en öll stríðsárin
yfirgáfu Schweitzerhjónin ekki
spítalann. Á jólunum 1945 skrif-
aði Sehweitzer í bréfi, að ómögu-
legt væri fyrir þau að yfirgefa
stöðina núna, það væri svo mik-
ið ógert. ,,Ég þyrfti að vera þrí-
tugur en ekki sjötugur,“ skrif-
aði hann, ,,en ég er, guði sé lof,
sæmiiega sterkur ennþá.“
Þrátt fyrir þrábeiðni vina um
að hverfa heim sér til hvíldar,
liðu þrjú ár áður en þau hjón-
in létu til leiðast. Jafnframt fór
Schweitzer í fyrirlestraferð um
Bandaríkin, og var honum hvar-
vetna tekið með kostum og
kimjum og hylltur sem eitt af
mikilmennum samtíðarinnar.
Schweitzer gleymdi ekki hugð-
arefnum sínum í læknisönnun-
um. Á stríðsárunum skrifaði
hann tvær stórar bækur um
heimspeki, og byrjaði á þeirri
þriðju! Og hver er svo lífsskoð-
un þessa manns? Þrátt fyrir
mikinn lærdóm og þekkingu, er
lífsskoðun hans einföld.
,,Það er sönn helgi fólgin í
persónuleika mannsins,“ skrif-
ar hann, „án tillits tii kynþátt-
ar, lífskjara eða Iitarháítar. Ef
þeirri manngildishugsjón er af-
neitað, er siðmenningunni búin
tortíming, og jafnvel mannkyn-
inu sjálfu.“
Önnur sannfæring — og sú
sem er leiðarstjarnan í lífi
Schweitzer — er trúin á kær-
leiksboðskap Krists. „Aðeins
fyrir kærleikann," segir hann,
„getum við öðlazt samféiag við
guð.“
Fyrir nærri 2000 árum talaði
Páll postuli um þá, sem eru
„heimskir sökum Krists“. Síðan
hafa margir menn og konur
fórnað þægindum lífsins fyrir
þjónustu 1 þágu meðbræðra
sinna. 1 þeim hópi er vitringur-
inn, listamaðurinn og læknirinn
Albert Schweitzer.
• V •
Lítil stúlka fann þurrkað laufblað i gamalli biblíu fjöl-
skyldunnar.
,,Sjáðu hvað ég fann, mamma," sagði hún. „Þetta hlýtur að
vera laufblaðið hennar Evu.“
— Tit-Bits.