Úrval - 01.12.1949, Blaðsíða 19
LEIKIR NÆTURINNAR
17
týri hann leggur út í hennar
vegna.
Þegar sporvagninn nemur
staðar við götuhornið litlu síð-
ar, stendur hann líka við glugg-
ann og gægist út um rifuna milli
gluggatjaldsins og gluggakarms-
ins. Fyrstir koma fyrir hornið
tveir ungir menn. Þeir hljóta
að hafa stokkið af áður en vagn-
inn nam staðar, þeir berja hvor
til annars í glensi og eiga heima
í nýja húsinu beint á móti. Há-
vaði 1 fólki, sem farið hefur úr
sporvagninum, heyrist bak við
homið, og um leið og vagninn
lcemur í ljós og rennur hægt og
skröltandi yfir götuna, sem Áki
á heima við, koma smáhópar
manna fyrir hornið og hverfa
síðan í ýmsar áttir. Maður með
hattinn í hendinni eins og betl-
ari og reikull í spori stefnir rak-
leitt að dyrunum hjá Áka, en
það er ekki faðir hans, það er
húsvörðurinn.
En Áki stendur kyrr og bíður.
Hann veit, að margt getur tafið
sporvagnsfarþega hinum megin
við hornið, þar eru margir sýn-
ingargluggar, einn í skóbúð, og
fyrir framan hann getur faðir-
inn til dæmis staðið til að velja
sér skó, áður en hann fer upp,
og í ávaxtabúðinni eru handmál-
uð auglýsingaspjöld og fólk
staldrar oft við til að skoða þau,
því að það eru svo skringilegar
mannamyndir á þeim. En fyrir
utan ávaxtabúðina er líka sjálf-
sali, sem alltaf er í ólagi, og
það getur vel hugsast, að faðir-
inn hafi stungið tuttugu og
fimm eyring í hann til að kaupa
eina öskju af Lákerol handa
Áka, og nú getur hann ekki opn-
að skúffuna.
Meðan Áki stendur við glugg-
ann og bíður eftir, að faðirinn
slíti sig lausan frá sjálfsalanum,
fer móðirin allt í einu út úr stof-
unni og framhjá eldhúsinu. Hún
er berfætt, og Áki hefur ekki
heyrt til hennar, en hún hefur
sjálfsagt ekki tekið eftir hon-
um, því að hún heldur áfram
fram í forstofuna. Áki sleppir
takinu á gluggatjaldinu og
stendur algerlega hreyfingarlaus
í myrkrinu, meðan móðirin leit-
ar að einhverju í yfirhöfnunum.
Það hlýtur að hafa verið vasa-
klútur, því að rétt á eftir snýtir
hún sér og fer aftur inn í stof-
una. Hún læðist hljótt, þó að
hún sé berfætt, og Áki veit, að
hún gerir það til að vekja hann
ekki. Þegar móðirin er komin
inn í stofuna, lokar hún strax
glugganum og dregur glugga-
3