Úrval - 01.12.1949, Blaðsíða 51
HUGUR OG HEILI
49
or'kusveiflurnar fyrst inn í mæn-
una, sem er mikilvægur hluti
miðtaugakerfisins, en ef sam-
bandið milli mænunnar og heil-
ans er rofið, getur mænan ein
ekki skynjað snertinguna.
Taugaorkusveiflurnar verða á
einhvern hátt að berast frá
mænunni til heilans áður en
skynjunin verður að veruleika.
Sannleikurinn er sá, að marg-
ir skyntaugaþræðirnir ná ekki
nema til mænunnar. Þeir grein-
ast í fíngert net innan um tauga-
frumur sjálfrar mænunnar og
komast þannig í beina snertingu
við þær. f þessum taugafrum-
um eiga nýir taugaþræðir upp-
tök sín, og liggja þeir upp eftir
mænunni til heilans. Tauga-
frumurnar í mænunni endur-
varpa með öðrum orðum áhrif-
unum frá skyntaugaþráðunum
tii heilans um taugaþræðina í
mænunni. Eða tökum áhrifin,
sem berast með sjóntauginni frá
auganu. Þeim er veitt móttaka
I neðri hluta heilans. En þau
vekja ekki sjónskvnjun þar. Það
er ekki fyrr en þeim hefur verið
endurvarpað þaðan út í gráa
taukakerfið í yfirborði heilans
— hvelkápuna — að sjónskynj-
unin verður að veruleika.
Það er hlutverk líffærafræð-
ingsins að rekja slóðir tauga-
orkunnar. Ég hef lýst, hvemig
hún berst til miðtaugakerfisins
frá hinum ýmsu skynfærum lík-
amans, og hvernig hún að lok-
um berst til þeirra hluta heil-
ans, sem skynjun og hugsun
virðast byggjast á. Þessar slóðir
eru gerðar af flækjum úr tauga-
þráðum. Þræðirnir eru ekki sýni-
legir nema í smásjá, og það er
ekki hægt að aðgreina þá með
hnífum og töngum, nema í mjög
fáum tilfellum, þegar þeir
mynda tiltöluiega þéttar flækj-
ur. Það verður að skoða þá í
smásjá.
Ef við skoðum þunna sneið
úr heilavef í smásjá — sneið,
sem lituð hefur verið með sér-
stökum litarefnum svo að þræð-
irnir sjáist greinilega — kemur
í ljós, að þúsundir taugaþráða
liggja sitt á hvað í allar áttir,
svo að ógerlegt virðist að rekja
einn einstakan taugaþráð til
enda síns í allri þeirri flækju. En
líffærafræðingurinn er svo lán-
samur, að ýmislegt kemur hon-
um til hjálpar í þeim sökum. Eitt
er það, að ef taugaþráður slitn-
ar við meiðsli, byrjar hann þeg-
ar að rýrna og leysast upp og
eyðist að lokum alveg. Með sér-
stakri litunaraðferð er unnt að