Úrval - 01.12.1949, Blaðsíða 58
56
ÚRVAL
Ef þú lest greinina vandlega,
muntu sjá, að hún er öll byggð
á ísmeygilegum orðum eins og
„fullyrt er“, „sakaður um“ og
„orðrómur“. Það finnst ekki
snefill af sönnunum til stuðnings
ákærunni. Maðurinn getur alveg
eins verið blásaklaus, en af frá-
sögn blaðanna dregur þú sam-
stundis þá ályktun, og sennilega
miljónir annarra manna, að hann
sé sekur. Það var þetta, sem
blaðið Christian Science Moni-
tor átti við, þegar það talaði um
Condonmálið sem „málsókn með
blaðafyrirsögnum“. Að mínu á-
liti er það líkara „skyndiaftöku"
(Iynching) en málsókn — því að
maður sem er þannig rógborinn,
fær sjaldan tækifæri til að verja
sig.“
Rósalinda hristi höfuðið. „Ég
skil þetta ekki. Ef maðurinn er
saklaus, þá hljóta blöðin að vera
fús til að hreinsa hann af áburð-
inum.“
„Sennilega," samsinnti hann.
„Sem betur fer eru flest blöð
landsins heiðarleg. En „hreins-
uninni“ er sjaldan ætlað eins
áberandi rúm í blaðinu og á-
burðinum. f fyrsta lagi er hún
ekki eins áhrifarík — og æsi-
fréttir eru fundið fé fyrir blöð-
in. Auk þess verðurðu að muna
„Mér virðist greinyðar, „Skyndi-
aftökur ciagblaðanna" vera mikil-
vægt framlag til pólitísks uppeldis
þjóðarinnar. Hún er einföld og
skýr, án þess að vanmeta vanda-
málið.“ •— Albert Einstein.
„Mér þykir mjög vænt um, að
þér skulið vekja athygli á þessu
mikla meini í amerísku þjóðlífi."
— C. A. Dykstra,
rektor Kaliforníuháskólans.
það, að blaðaútgefendur kunna
að hafa pólitískra hagsmuna að
gæta. En hvað sem öllu þessu
líður, þá neitaði vísindamaður-
inn, sem talað er um hérna í
blaðinu, ákærunni."
„Hvernig veiztu það?“ spurði.
hún hvasst. „Það sá ég hvergi.“
„Það sannar einmitt mitt
mál,“ sagði Filippus. „Frásögn-
in af ákærunni heldur áfram á
blaðsíðu sjö. Ef þú lítur neðst
á blaðsíðu sjö, muntu sjá skýrt
frá því í örstuttu máli, að vís-
indamaðurinn neiti ákærunni.
Og mestar líkur eru til, að öll-
um fjöldanum sjáist yfir hana
eins og þér.“
Rósalind roðnaði og fletti
blaðinu, og eftir stutta leit fann
hún greinina.
i,Þetta er óheiðarlegt,“ sagði
hún, þegar hún hafði lesið grein-