Úrval - 01.12.1949, Blaðsíða 130
128
ÚHVAL '
hvort sem það var starfið eða
aðeins hressingarganga. Það,
sem einu sinni hafði verið smá-
púki, var orðið að djöfli, sem
rak hann áfram frá einu til
annars til þess að reyna að
gleyma sjálfum sér í flutningi
verka sinna. Einhver í skrif-
stofu vikublaðs hans veitti því
athygli, hve þreytulegur og tek-
inn hann var orðinn, þegar hann
laut yfir skrifborðið sitt og
rýndi í handrit gegnum gull-
spangagleraugun, og hve hrum-
ur hann var og sorgmæddur.
Enda þótt hann væri fyrst
og fremst tengdur London,
borginni, sem hann hafði skap-
að með orðum, fór hann þó til
bústaðar síns fyrir utan borg-
ina, þegar hann fann á sér að
hann ætti skammt eftir ólifað.
Hinn 8. júní vann hann eins
og venjulega. Miðdegisverður
átti að vera klukkan sex; en
áður en hann settist til borðs,
fór hann inn í skrifstofu sína
til þess að skrifa tvö eða þrjú
bréf. þar á meðal eitt til Charles
Kent, þar sem hann brá á glens.
Dickens var rétt byrjaður að
matast, þegar Georgina veitti
því athygli, að hann var
þjáður. Hann sagðist hafa ver-
ið mjög lasinn í klukkustund,
en vildi að þau héldu áfram að
borða. Svo hvíslaði hann nokkr-
ar samhengislausar setningar,
og sagði að lokum, að hann yrði
að fara strax til London; síðan
reis hann upp frá borðinu og
hefði hnigið niður, ef Georgina
hefði ekki brugðið við og stutt
hanh. Hún reyndi að koma hon-
um yfir á legubekkinn; en heila-
blóðfallið hafði lamað hann, og
um leið og hann sagði: „Á
jörðina“, hné hann niður á gólf-
ið. Hann lá hreyfingarlaus allf
kvöidið, var erfitt um andar-
drátt og komst aldrei til með-
vitundar. Þetta ástand hélst ó-
breytt þar til klukkan var tíu
mínútur yfir sex að kvöldi hins
9. júní. Þá fór kippur um hann
og hann varpaði öndinni. Tár
rann niður vanga hans; og hinn
örþreytti líkami varð kyrr að
eilífu, hrjáð sál hans hafði hlot-
ið hvíldina.
• V *
TJRVAL tímaritsgreina í samþjöppuðu formi.
Ritstjóri Gísli Ólafsson, Leifsgötu 16, Reykjavík Afgreiðsla Tjamar-
götu 4, Pósthólf 365. Fæst hjá bóksölum um land allt.
ÚTGEFANDI: STEINDÓRSPRENT H.F.