Úrval - 01.12.1949, Blaðsíða 101
ÆVISAGA DICKENS
99
ens lítið til að draga úr þeirri
skoðun.
Starf og leikur.
Árið 1838 var mesta starfs-
árið í lífi Dickens. Hann var þá
að semja Oliver Twist og Nic-
holas Nickleby, skrifa fleiri
þætti, og var auk þess ritstjóri
tímaritsins Bentleys Miscellany.
Þeim, sem lesið hafa bækur
hans er ljóst, að þær eru frem-
ur skrifaðar af tilfinningu en
íhugun. Hann varð að lifa sig
algerlega inn í verk sitt eins
og leikari lifir sig inn í hlut-
verk. „Ég get aldrei skrifað á-
hrifamikið verk, einkum ef það
er alvarlegs eðlis, nema ég sé
búinn að ná mér á strik fyrst“,
sagði hann, „eða með öðrum
orðum, ekki fyrr en ég er orð-
inn svo hrifinn af viðfangsefn-
inu, að ég get ekki hætt.“ Hann
hafði enga hugmynd um það
fyrirfram, hvernig persónurn-
ar eða atburðarásin yrðu, og
þegar hann stóð upp frá skrif-
borði sínu, var hann nærri því
eins undrandi yfir rás viðburð-
anna og lesandinn síðar. Með-
an hann var að semja Oliver
Twist, varð honum allt í einu
ljóst, að gera mætti gott leik-
rit úr sögunni, og skrifaði þá
leikhússtjóra einum: „Ég er
þess fullviss, að enginn getur
haft hugmynd um hvernig ég
ætla að láta söguna enda, því
að eins og stendur veit, ég það
ekki sjálfur.“
Oliver Twist jók á vinsældir
Dickens. Sagan var þó gerólík
því verki, sem hann hafði samið
næst á undan. í Oliver Tunst
kom í fyrsta skipti fram hin
dásamlegi hæfileiki Dickens til
að lýsa lífinu í London. Hann
lifði sig svo inn í líf borgarinn-
ar, að hann var svo að segja
hluti af múrveggjum hennar.
Dickens 27 ára.
Menn hugsa og tala um Lund-
úni Dickens eins og hann hefði
skapað borgina. Enginn maður
annar hefur unnið slíkt afrek
fyrir neina borg, og næst á eft-
ir skopi hans, er það dýrmæt-
asti og persónulegasti skerfuf
hans til bókmenntanna. Hann
er mesti staðarrithöfundur, sem
uppi hefur verið.
Hús heldra fólksins stóðu nú
Dickens opin. Það var sagan
Nicholas Nickleby, sem gerði