Úrval - 01.08.1951, Qupperneq 10
8
ÚRVAL
ir að þetta yrði fellt niður til
þess að Hjálpræðisherinn móðg-
aðist ekki. Stam er fellt úr öll-
um handritum og myndum
vegna fjölda mótmæla frá for-
eldra- og kennarafélögum. Ef
þorpari í kvikmynd er blaða-
maður, stjórnmálamaður, lög-
fræðingur, kennari, læknir eða
af einhverri annarri atvinnu-
stétt, verður að gæta þess að
aðrir meðlimir sömu stéttar séu
sýndir heiðvirðir.
Ýmislegt fleira heyrir undir
bannreglurnar, en allt það
helzta hefur þó verið rakið hér
að framan. Og hvernig eru svo
þessar bannreglur liðnar í
Hollywood? Það er fljót sagt,
að engu bölva hollywoodbúar
eins mikið og siðareglum Sam-
bandsins. Þó að kvikmynda-
framleiðendurnir hafi sjálfir
samið þær, er engum vel við þær.
Afstaða kvikmyndafélaganna er
sú, að þau verði að umbera siða-
reglurnar til þess að komast
hjá frekari ritskoðun. En hvort
sem menn fara í kringum siða-
reglurnar, sætta sig við þær af
illri nauðsyn, bölsótast gegn
þeim eða nota þær sem skálka-
skjól, trúir enginn, sem eitt-
hvað kemur nálægt kvikmynda-
framleiðslu, á siðbætandi áhrif
þeirra. Enginn trúir í alvöru,
að orðin „lousy“ ,,wolf“ og
,,damn“ séu dónaleg sem slík,
eða að upphrópanir eins og „Oh
Lord“ geti grafið undan siðferði
amerísku þjóðarinnar eða nokk-
urrar annarrar þjóðar. Enghm
trúir því heldur, að bending í
þá átt að æðsta tjáning hjóna-
bandsins hafi átt sér stað, eða
að komið geti til hjónaskilnað-
ar án þess að á eftir rigni eldi
og brennisteini, mundi spilla
unglingum meðal áhorfenda.
Eða að það geti haft slæm áhrif
á nokkurn mann að horfa á
bleijubýtti á blautu ungbarni.
Víst er, að enginn í Hollywood
sýnir neina tilburði í þá átt að
lifa samkvæmt siðareglunum,
eða trúir í alvöru að þær séu
nauðsynlegar vegna fólksins.
Hin raunverulega orsök þess
að Hollywood hefur sett upp
þenna yfirskinssvip siðsem-
innar er í fyrsta lagi ótti við að
ýms borgaraleg og trúarleg fé-
lagssamtök séu svo áhrifamikil,
að þau geti knúið löggjafann til
að samþykkja ritskoðunarlög
og í öðru lagi ótti við að þessi
sömu félagssamtök séu svo
valdamikil meðal almennings,
að þau geti sett þau kvikmynda-
hús í bann, er sýni myndir, sem