Úrval - 01.08.1951, Qupperneq 70
68
ÚRVAL
hlutanum, sem reynist vel, og
hinum fáu, sem lenda á villi-
götum ? Tilgangurinn með rann-
sóknum Glueckhjónanna var að
finna þá meginþætti, sem eru
sameiginlegir öllum afbrota-
unglingum.
I tíu ár unnu þau hjónin að
þessum rannsóknum. Þau völdu
sér til rannsóknar 1000 drengi.
Helmingur þeirra voru „góðir“
drengir, bæði á heimili og í skóla.
Hinir 500 höfðu komizt í hendur
lögreglunnar — flestir dæmdir
til vistar á betrunarheimilum
eftir að dómarar, læknar og
barnaverndarnefndir höfðu ár-
angurslaust reynt að hjálpa
þeim.
Þau hjónin ákváðu að flokka
saman drengina tvo og tvo, að
svo miklu leyti sem unnt var,
sinn úr hvorum hópi. Þeir voru
,,paraðir“ saman eftir aldri,
gáfnafari, uppeldisaðstæðum o.
fl. Óknyttadrengur úr fjöl-
skyldu, sem greiddi 26 dali í
húsaleigu, var settur við hlið
„góðs“ drengs úr fjölskyldu,
sem greiddi sömu húsaleigu;
grikki var settur við hlið grikkja
og stjúpsonur við hlið stjúpson-
ar. Drengirnir voru vegnir,
mældir og ljósmyndaðir. Þeir
voru læknisskoðaðir, greindar-
prófaðir og skoðaðir af sálfræð-
ingum og taugalæknum. Fjöl-
skyldulíf þeirra var rannsakað,
svo og persónusaga þeirra.
Upp úr þessum aragrúa stað-
reynda stígur furðuleg mynd:
hin samsetta mynd afbrotaungl-
ingsins. Þessi mynd er að lík-
amsgerð, lunderni og skapgerð
næsta ólík þeirri mynd, sem við
höfum gert okkur af afbrota-
unglingum. Það eru í henni svo
margir eiginleikar, sem stuðlað
gætu að manndómi og heillarik-
um þroska, ef þeim væri beint
inn á aðrar brautir!
Sú hefðbundna hugmynd, að
afbrotaunglingurinn sé vanhirt-
ur og vannærður vesalingur er
ekki í samræmi við veruleikann;
miklu líklegra er, að hann sé
íþróttamannslega vaxinn. Hann
ber síður en svo merki vaneld-
is; hann er hærri og þyngri en
jafnaldrar hans meðal ,,góðra“
drengja. Hann er karlmannlegri,
vöðvastæltari, herðabreiðari og
þróttmeiri. Þessi íþróttamanns-
lega mynd af afbrotaunglingn-
um á ekki aðeins við undantekn-
ingar. „Hún er þvert á móti at-
hyglisvert líkamlegt samkenni
þeirra,“ segja höfundar skýrsl-
unnar.
Niðurstöður heilbrigðisskoð-