Úrval - 01.06.1953, Blaðsíða 8
6
ÚRVAL
ur taugaveiklaða yfirstéttar-
konu, sem segir skilið við stétt
sína og umhverfi til þess að
helga líf sitt öreigunum, en
lendir að lokum á hæli fyrir
vandræðakonur. Myndin er
þokukennd í hálfkommúnistisk-
um áróðri sínum, en geymir
atriði sem seint munu gleym-
ast.
Tvær myndir skulu enn
nefndar: Frá liðnum dögum
eftir Blasetti og Góðan dag-
inn, fíll eftir Franciolini. Hin
fyrrnefnda greinir frá atburð-
um um aldamótin, ýmist
dramatískum eða skoplegum. I
einu skoplegasta atriðinu leik-
ur De Sica lögfræðing, sem
á að verja gleðikonu (Ginu
Lollobrigida) og á klæðnaður
hennar drjúgan þátt í atriðinu.
Leikur þeirra er frábær, en
skopið er blandið beittri ádeilu.
Góðan daginn, fíll er skringi-
leg saga, og leikur De Sica
einnig aðalhlutverkið í henni,
uppburðarlítinn kennara. Ind-
verskur fursti sendir honum
fíl að gjöf í þakklætisskyni
fyrir ágætt leiðsögustarf. Við
það lendir hann í margskonar
vandræðum, þangað til honum
tekst að koma fílnum fyrir í
dýragarði þar sem hann heim-
sækir hann á sunnudögum og
lifir í voninni um að geta ein-
hverntíma keypt hús þar sem
hann og fjölskylda hans geti
haft fílinn hjá sér. Öll eigum
við okkar draum um hamingju
í framtíðinni, og er draumur
kennarans um fílinn nokkuð
meiri fjarstæða en ýmislegt
annað ?
Italskar kvikmyndir eru
spennandi kafli í nútímasögu
kvikmyndanna, og það eykur á
eftirvæntinguna, að þeim kafla
er ekki enn lokið. Það er enn
ýmislegt að gerast í Italíu og
það er okkur ekki óviðkom-
andi.
(X) co
Ekki pundsvirði.
Sir Winston Churchill var nýlega á leið úr heimsókn frá kunn-
ingjum í West End. Hann átti að flytja útvarpserindi og var
að verða of seinn. Gaf hann því leigubílstjóra merki og bað hann
að aka, sér í skyndi til salarkynna brezka útvarpsins.
„Því miður, herra minn," sagði bílstjórinn. ®g er tímabund-
inn, ég þarf að flýta mér heim til að geta hlustað á útvarps-
ræðu Churchills."
Sir Winston varð hreykinn af þessum áhuga bílstjórans, dró
punds seðil upp úr vasanum og rétti honum.
Bílstjórinn rak upp stór augu, tók síðan viðbragð og hratt
upp hurðinni.
„Hoppið upp í, herra minn! Fjandinn má hlusta á Churchiil
mín vegna!“
— Netw Liberty.