Úrval - 01.06.1953, Blaðsíða 33
Háfjallabúar hafa öðruvísi líkaras-
}>yS8’ingu en annað fólk.
HÁFJALLABÚAR
Úr bókinni „Watch Out for the Weather“,
eftir Jacqueline Berke og Vivian Wilson.
AÐ er bær í Colorado í
Bandaríkjunum, þar sem
sjóða þarf egg í sjö mínútur
til þess að hvítan í því hlaupi
og kartöflur í hálfan annan
klukkutíma, sem annarsstaðar
þurfa aðeins 45 mínútna suðu.
Vatn sýður þar við 88° á C. í
stað 100 víðast hvar annarsstað-
ar, kökur og brauð lyfta sér á
miklu skemmri tíma en annars-
staðar — en falla síðan og verða
klesst.
Nafn þessa bæjar, sem brýt-
ur flestar reglur í daglegu lífi
manna, er Climax. Og ástæðan
er sú, að hann er fjallabær, í
3500 metra hæð yfir sjó. Climax
er hæsti bær í Norðurameríku
sem nýtur reglubundinnar póst-
þjónustu. Hann er líka einn af
þeim köldustu (meðalhitinn er
+ 2° á C.) og einn af þeim
heilsusamlegustu. Þar er furðu-
lega lítið um bakteríusjúkdóma
og sýklaberaflugur hafa aldrei
tyllt þar fæti sínum.
Samt búa þar aðeins tveir
þriðju af þeim fólksfjölda sem
þar vinnur, en það eru 1500
manns. Hinir kjósa heldur að
hverfa á kvöldin til heimkynna
sem ekki liggja eins hátt. Þeir
þola illa áreynsluna sem er því
samfara að lifa í Climax.
Sumir kvarta undan því að
þeir sofi alltaf illa, lungu þeirra
fái aldrei eðlilega hvíld, en þurfi
sífellt að strita til að ná því súr-
efni úr þunnu loftinu, sem lík-
aminn þarfnast. Aðrir kvarta
undan því, að þeir geti ekki feng-
ið sér einn cocktail á undan mat
án þess að verða þéttkenndir.
Bömin sem fædd eru í Climax
hafa algera sérstöðu. Þau hafa
engin óþægindi af loftslaginu.
Líkami þeirra er frá upphafi
vanur því álagi, sem fylgir hinni
miklu hæð. Fæstir þeirra sem
búa í Climax hafa verið þar svo
lengi, að þeir hafi vanizt loftinu.
Það eru til mannabústaðir í
meiri hæð en Climax — nokkur
þorp í Suðurameríku og Asíu,
t. d. Hæsta pósthús í heimi er
í námaþorpinu Cerro de Pasco
í Perú, það er í 4400 metra hæð.
Þessi þorp eru eldri en Climax,
og fólkið sem þar býr mætti
kalla sérstaka manntegund, frá-
bmgðna því fólki, sem býr lágt.