Úrval - 01.06.1953, Blaðsíða 45
Vöxtur bamsins og þroski er mikil-
vægusta heimildin Ijil skilnings
á hegðiui þess.
Lítil böru eru líka rnenn.
Grein úr „Det Rigtige",
eftir C. Anderson Aldrich, prófessor.
EGAR BYGGJA A nútíma
skýjakljúf eru teikningar
húsameistarans flokkaðar og
skráðar svo að þeir sem sjá um
bygginguna eigi greiðan aðgang
að þeim eftir því sem á líður
verkið. Þegar mannsbarn
vex er málið öliu flóknara. Á-
ætlunin um vöxt barnsins er
vissulega jafnítarleg og áætlan-
ir húsameistarans um byggingu
skýjakljúfsins, en teikningarnar
eru geymdar í barninu sjálfu.
Það er ekki fyrr en á síðustu ár-
um, að vísindin hafa dregið
fram í dagsljósið ýmis atriði í
sambandi við vöxt barnsins og
þroska og gefið okkur réttar
upplýsingar um þau.
Það hafa verið skrifaðar
margar ágætar bækur, sem eiga
að leiðbeina foreldrum um gæzlu
ungbarna, en sjónarmiðin eru
næstum eins mörg og bækurnar.
Þeir sem þekkja ekki það grund-
vallarsjónarmið, sem leiðbein-
ingarnar eru reistar á, verða
ruglaðir af þessum sundurleitu
kenningum. Það er ekki með öllu
rangt að nútíma barnauppeldi sé
orðið svo flókið, að menn komi
ekki auga á skóginn fyrir trján-
um. Mikið af þessum glundroða
hefur skapast af því að mikil-
vægasta heimildin til skilnings
á börnunum er óaðgengileg.
Þessi heimild er vöxtur og
þroski barnsins sjálfs.
Ef við athugum þroska bams,
mæta okkur margar áþreifan-
legar staðreindir, sem máli
skipta fyrir uppeldi barnsins. I
líkama ungbarns eru að verki
öfl, sem hvetja það til að gerast
virkur meðlimur f jölskyldunnar,
öfl, sem vekja skilning þess á
öllu sem því berst gegnum skiln-
ingarvitin, öfl sem knýja það til
að tala, leika sér, borða og
hegða sér eins og maður, en ekki
eins og api, öfl sem hjálpa því
til að taka sömu framförum og
við tókum, og leiðir það í sömu
ógöngur og við lentum í, þegar
við vorum börn. Sérhvert form
mannlegra athafna þróast eftir
rökréttri áætlun, sem leynist
bak við hrukkótt og sviplaust
andlit hins nýfædda barns.
Þessi áætlun er eins og teikn-
ing, sem sýnir annarsvegar
þroskaferil hinna einstöku lík-
e*