Úrval - 01.06.1953, Blaðsíða 63
LOKAÐUR HEIMUR
61
einkenni ofstækis, sem minnir
á þann kreddubundna prédikun-
artón, er finna má í tímarit-
um og blöðum ýmissa sértrúar-
flokka. Þetta er Iokaður heimur,
og manni skilzt að þetta hljóti
að vera svona eftir margra kyn-
slóða kúgun og misþyrmingu,
manni skilzt einnig, að sú upp-
örvun, sem svona greinar geta
veitt, sé nauðsynleg af því að
enn vantar mikið á að negrarn-
ir hafi hlotið jafnrétti í Banda-
ríkjunum; en þó að maður telji
sig vita orsökina — eða kannski
einmitt þessvegna — finnst
manni þröngsýnin átakanleg.
*
Svo eru það auglýsingarnar.
I amerískum blöðum af þessu
tagi eru auglýsingar ekki hvað
minnstur þáttur og er fróðlegt
og skemmtilegt að kynnast þeim
marglita, furðulega markaði,
sem þær opinbera.
Segið skilið við einveruna, bjóðið
fegurðina velkomna — NADINOLA
bleikilcrem! Ábyrgð tekin á árangri
af notkun einnar krukku!
Þér fáið bjartari og skœrari liúð
ef pér notið STAR GLOW hörunds-
bleikir! Ilættið að öfunda vini yðar!
Nti getið pér einnig fengið hirni
bjarta, fagra, rjómagula hörundslit,
sem býður ástinni heim, ef þér notið
STAR GLOW hörundsbleiki!
Nú getið þér orðið mörgum gráð-
um Ijósari! Lœknisfrœðilega sönnuð
aðferð til að fá Ijósari hörundslit!
Þremur gráðum Ijósari á þrem dög-
um!
Falleg hárgreiðsla byrjar með
sléttu hári! PERMA-STRATE — úf-
breiddasta hársléttunarmeðalið! . . .
Hárið helzt slétt í 3 til 6 mánuði eftir
eitta notkun . . . Nýtt, fljótandi hár-
sléttunarmeðal! GLO-AN gefur
mjúkt, auðgreitt, óhrokkið liár!
Það verður ekki með réttu
sagt, að ekkert sé gert til þess
að negrarnir fái jafnrétti við
hvíta menn. Á næstum hverri
síðu í þessu og öðrum negratíma-
ritum eru auglýst efni og smyrsl,
sem hafa það eitt markmið að
gefa negrunum eins ,,hvítt“ út-
lit og unnt er. Það eru ekki að-
eins auglýst bleikiefni og efni
til að eyða hinum óvinsælu
hrokkinkollum. Handa þeim,
sem ekki hefur reynzt nein stoð
í slíkum efnum, eru heilsíðuaug-
lýsingar um nýjasta úrræðið —
hárkolluna. Það úir og grúir af
auglýsingum um hárkollur, sem
allar eru með slétt eða fagur-
lega liðað hár, tilbúnar til að
setja á nauðrakaðan skallann.
Annað sem maður rekur aug-
un í eru allar gleraugnaauglýs-
ingarnar, oftast í sambandi við
hárkolluauglýsingarnar. Ljóst
er af auglýsingunum, að gler-
augun eru ekki til þess ætluð
að bæta sjónina, því að þau eru
send gegn póstkröfu, í þeim lit-
um sem óskað er: reyklituð, gul,
grænleit eða ólituð. Tilbrigðin í
umgjörðunum eru furðuleg; þær
fást með gervigimsteinum
greiptum í hornin og allskonar
útflúri og öðru skrauti. Tak-
markið virðist vera svipað og
með hárkollunum — að gefa
notandanum sem fyrirmannleg-
ast útlit og gera hann sem lík-
astan hvítum mönnum.