Úrval - 01.06.1953, Blaðsíða 21
FYRSTA SKÁLDSAGAN MlN
19
þessa bross opinberast þér allt
á himni og jörð.
Þetta er algeng reynsla; ég
býst við að næstum allir hafi
kynnzt einhverju svipuðu. Og
flestir eru svo skynsamir, að láta
sér nægja að geyma hana sér í
minni.
En það er til sérstök tegund
manna, sem eru þannig gerðir,
andlega, að þeir eru ekki ánægð-
ir fyrr en þeir hafa reynt að
umskapa þessa reynslu þannig
að aðrir fái notið hennar. Allrar,
á ég við. Ekki aðeins atburðar-
ins, heldur gildis hans — alls
þess heims skyldleika og tilfinn-
inga, sem atburðurinn hefur
varpað ljósi á. Og slíkur maður
er knúinn til að reyna þetta,
jafnvel þó að það kosti hann
fimm ára erfiði og hálfa milljón
orða.
Aftur og aftur mistekst hon-
um. Orð eru óþjáll málmur til
að vinna úr — þau þrjózkast
við, þær myndir sem þau skapa
eru sviplausar, þau þurrka út
blæbrigði, þau geta drepið hug-
myndir sem hann ætlaði þeim
að lýsa. En byrjandinn gerir
sér ekki grein fyrir þessu — í
einfeldni sinni heldur hann að
málið sé fjársóður sem skapað-
ur hefur verið sérstaklega til
notkunar fyrir hann. Honum er
fullljóst, að hverri bók hans á
fætur annarri hefur mistekizt að
túlka með orðum töfra lífsins
eins og hann hefur séð þá. En
hann trúir því staðfastlega, að
í næstu bók — eða þar næstu —
muni hann festa hendur á leynd-
ardóminum, ná því sem aldrei
verður náð, skapa eitthvað sem
fullnægir honum algerlega. Og
þá heldur hann að smánin sem
allt fálmið fram til þeirrar
stundar hefur bakað honum,
muni hverfa í skuggann.
Fluga í kollinuni.
Geðlæknir átti í stökustu vandræðum með sjúkling', sem hald-
inn var þeirri þráhyggju, að fluga hefði komizt inn í eyrað á
honum. Hann gekk alltaf með annan fingurinn í eyranu, og flug-
an var alveg að gera út af við hann.
Að lokum vissi læknirinn ekki annað ráð en að bjóða sjúkl-
ingnum að taka fluguna með skurðaðgerð. Sjúklingurinn var
svæfður og á eftir var honum sagt, að flugan hefði verið tekin.
Maðurinn var alls hugar feginn. En viku seinna mætti læknir-
inn honum og var hann þá enn með fingurinn í eyranu.
„En ég er búinn að taka fluguna," sagði læknirinn. „Af hverju
eruð þér enn með fingurinn í eyranu ?“
„Haldið þér að ég kæri mig um að eiga á hættu að fá aðra
flugu í eyrað."
— Allt.
3*