Úrval - 01.06.1953, Blaðsíða 79
HVERT ER LÖGMÁL. SENNILEIKANS ?
77
„það er vissulega rétt, að þegar
til lengdar lætur, eiga gildi og
kóróna að koma upp því sem
næst jafnoft, og hvernig get-
ur það verið rétt nema tilhneig-
ingar gæti hjá þeirri hliðinni sem
sjaldnar hefur komið upp til
þess að ná hinni, sem oftar hef-
ur komið upp?“
Það er auðvelt að sjá hvers-
vegna jöfn hlutföll milli beggja
hliða þegar til lengdar lætur
hafa ekki í för með sér, að sú
hliðin, sem sjaldnar hefur komið
upp, hafi ekki tilhneigingu til að
koma oftar upp til að jafna mis-
muninn. Gerum ráð fyrir að af
10.000 uppköstum hafi kórónan
komið upp 200 sinnum oftar en
gildið, sem er ólíklegt, en þó
hugsanlegt. Skekkjan, sem nem-
ur tveim hundraðshlutum, virð-
ist mikil, en ef við höldum áfram
þangað til köstin eru orðin milj-
ón og mismunurinn heldur á-
fram að vera 200, er hann að
hundraðshlutum aðeins 0,02, og
því lengur sem haldið er áfram,
því lægri verður hlutfallstalan.
Allir þekkja þetta fyrirbrigði
í sambandi við aldur fólks. Ef
þú ert eldri en konan þín, þótt
ekki sé nema einum degi, þá get-
urðu með réttu sagt: ,,Eg var
einu sinni helmingi eldri en þú,
og fyrir þann tíma var ég einu
sinni milljón sinnum eldri.“
Tveggja ára aldursmunur er
geysimikið á byrjun ævinnar,
en skiptir sama og engu máli
á elliárum.
Þannig er lögmál sennileikans
dálítið frábrugðið því sem við
erum vön að gera okkur í hug-
arlund, án þess að kryf ja málið
til mergjar.
Misskilningur.
Fjölskyldan sat að miðdegisverði ásamt gesti, sem var við-
skiptavinur húsbóndans. Þegar komið var inn með matinn rak
fimm ára sonur hjónanna upp stór augn. ,,Er þetta ekki steikt
kjöt, mamma ?“ sagði hann undrandi.
„Jú," sagði móðir hans. „Af hverju spyrðu að því?“
„Pabbi sagði í morgun, að hann astlaði að koma með stórlax
til miðdegisverðar í dag.“
— World Digest.
—'k—
Barlómur.
Jónas bóndi lifði samkvæmt málshættinum: Það er ekki bóndi,
sem ekki kann að berja sér. En einu sinni var kartöfluuppsker-
an með afbrigðum góð hjá honum, og nágranni hans hafði orð
á því.
„Rétt er nú það,“ sagði Jónas, „en hvar fæ ég nú úrgangs-
kartöflur handa grisunum mínum ?“
Maclean’s.