Úrval - 01.06.1953, Side 31

Úrval - 01.06.1953, Side 31
ÁST OG AÐLÖGUN 29 boð foreldranna var: þú skalt ekki; hið nýja vald, læknirinneða ráðgjafinn, sýnir með fræðslu sinni, að hér eiga engin bönn við, að, mér, einmitt mér, er allt þetta leyfilegt. Þetta getur ef til vill komið sumum að liði. Stundum þegar maður er að glíma við þessi vandamál, hugs- ar maður með dálítilli öfund til frumstæðra þjóða, þar sem börn- in iðka kynferðisleiki óhindruð eða þar sem tæknileg kynf ræðsla er náttúrlegur liður í uppeldinu. Þetta fólk á ekki við nein kyn- ferðisleg vandamál að glíma á fullorðins aldri, sumt skilur jafn- vel ekki hvað við er átt, þegar maður reynir að spyrja það. Þessi orð mín ber ekki að skilja svo, að ég sé meðmæltur al- mennu lauslæti meðal barna eða einhverju öðru sérstöku ráði til úrbóta. En ég tel mikilvægt að menn geri sér ljóst, að það eru ekki meðfæddir líffræðileg- ir eiginleikar, heldur hin ráð- andi viðhorf í menningu okkar, sem valda því að kynferðisleg aðlögun reynist oft og tíðum erfið raun, blandin hræðslu, sektarvitund, ótta og óhamingju. Sum okkar eru enn það þjál, að okkur tekst að lokum að öðlast það sem við köllum hamingju. Óðrum tekst það ekki. í lækningastofunni er algengt að heyra konur afgreiða kyn- ferðismálin með athugaserndum eins og þessum: „Það er eins og það á að vera“ eða „þegar maður hefur verið gift í 4 ár, er maður hættur að hugsa um slíkt“ eða „maðurinn minn er svo nærgætinn", sem oftast merkir, að hann kærir sig ekki um konuna sem hvílunaut. Mönnum, sem eiga í miklum kynferðisörðugleikum, nægir ekki að segja, að kynferðismök séu náttúrlegt fyrirbæri en ekki syndsamlegt og ljótt athæfi, eða skýra fyrir þeim hversvegna hlaupið hefur í baklás hjá þeim. Með langvarandi, erfiðum að- gerðum verður stig af stigi að reyna að breyta því sem vegna skaðlegra og þröngsýnna við- horfa umhverfisins hefur rang- hverfzt. Mörgum er líklega alls ekki hægt að hjálpa. Á meðan menning okkar er eins og nú, verðum við að sætta okkur við að auðug og frjáls kynferðisleg hamingja falli aðeins í skaut fáum útvöldum, sem annað hvort hafa notið uppeldis, er hefur hjálpað þeim á leið að markinu, eða hafa verið svo þjálir, haft svo sterka sjálfshvöt, vilja, þol- inmæði og úthald, að þeir hafa sjálfir getað losað sig undan skaðlegum uppeldisáhrifum. Örlítið bjartari hlið á þessu máli (þótt ekki sé hún mjög björt) er það sem ég sagði áð- an um hinn ótrúlega hæfileika manna til að líta á viðhorf sín sem eilíf sannindi, er gildi fyrir alla. Þessvegna finnst mörgum að kynferðislíf þeirra sé hið eina rétta. Sá sem er kyndaufur, lít- ur á áhuga annarra á kynferðis-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.