Úrval - 01.06.1953, Síða 40
Engisprettuplága hefur nú í nærri
þrjú ár herjað í Miðaustur-
lönclum og Afríku.
Þegar engisprettan gerist umskiptingur.
Grein úr „United Nations World“,
eftir Edwin Muller.
UTI í garði vorum þessa stund-
ina er skæðasti óvinur
mannkynsins. Vér höfum séð
hann svo oft, að vér erum hætt
að gefa honum gaum. Eða ef
vér gerum það, þá hugsum vér
hlýlega til hans. Hann er ein-
staklega þriflegt skordýr, sem
hoppar fimlega lauf af laufi og
nartar í þau sér til næringar.
Þetta er engisprettan.
En engisprettan getur orðið
sannkallaður umskiptingur. Það
verða á henni örlitlar breyting-
ar og í einni svipan breytist
hún í plágu. Um þessar mundir
er hún í hinum skæða ham og
ógnar fóðuruppskeru fjórðungs
mannkynsins.
Ein af verstu engisprettu-
plágum, sem dunið hafa yfir
mannkynið, herjaði á árunum
1951-—52, og er ekki séð fyrir
endann á henni enn. Skæðust
var hún í Miðausturlöndum —
Iran, Irak, Jórdaníu og Arabíu.
Grænar grassléttur og akurlönd,
sem námu hundruðum þúsunda
fermílna, urðu að brúnum, iðandi
berangri. I ár hefur plágan
teygt arma sína allt frá frum-
skógum Miðafríku til fjallsróta
Himalaja. íbúar Indlands og
Pakistans, 400 milljónir talsins,
eru á þessu hættusvæði.
Hvað vitum vér um þennan
gráðuga varg? Staldrið við með
mér á grænum kornakri á sól-
björtum sumardegi. Uti við
sjóndeildarhringinn birtist
dökkt ský. Það stækkar ört, eins
og vaxandi þrumuský. Brátt
byrgir það sýn til sólar og loftið
titrar af djúpu tísti.
Skyndilega, eins og eftir fyr-
irskipun, sígur sveimurinn til
jarðar. Sólin skín aftur, en nú
hefur akurinn breytt um lit;
hann er orðinn brúnn og allur
kvikur. Engispretturnar ganga
hreint til verks. Þær éta kornið,
blöðin og stilkana alveg niður í
rót. Jafnvel girðingastaura éta
þær upp til agna. Þegar sveim-
urinn hefur sig aftur til flugs
og hverfur á brott, er akurinn
orðinn að eyðimörk. Og ekki að-
eins þessi akur: allir akrar, eins
langt og augað eygir, eru í eyði.
I stórum sveim geta verið allt
að 500 milljónir engisprettna,
sem þekja um 500 ferkílómetra.
Kunnugt er um sveim, sem þakti
5000 ferkm. Engisprettusveim-