Úrval - 01.06.1953, Page 109

Úrval - 01.06.1953, Page 109
SKARTGRIPASKRlNIÐ 107 gera hinum nýja húsbónda sín- um allt til hæfis. Enda þótt Lurkur væri drukk- inn, sá hann þó að hverju fór. Hann tók sér það nærri vegna gestanna. Þessvegna stóð hann iipp frá borðinu og sagði svo að allir heyrðu: „Mér stendur rétt á sama þó að húsbóndinn ætli að taka kon- una mína frá mér. Látum hann bara gera það! Ég harma það ekki, að vera laus við hana! Því að ég hef augastað á ann- arri!“ Og nú tók hann útsaumuðu myndina upp úr vasanum. Allir voru stórhrifnir af henni. Ungi námueigandinn ætlaði blátt á- fram að gleypa hana með aug- unum. „Hver er þetta?“ spurði hann. Lurkur var ekki lamb að leika sér við. Hann rak upp skelli- hlátur, og svaraði: „Það segi ég ekki þó að þú hlaðir allt borðið gulli!“ En hann hafði varla sleppt orðinu, þegar allir námumenn- irnir höfðu þekkt Tanjusjku. Þeir reyndu einn af öðrum að fræða húsbóndann. Þá fauk í konu Lurks. „Hvaða bull er þetta í ykk- ur!“ hrópaði hún æst. „Er það kannski ætlunin að koma okkur til að trúa svona kjaftasögum! Hvernig ætti stúlka hér í þorpinu að komast yfir slíkan klæðnað og slíka gimsteina? Nei, maðurinn minn kom með þessa mynd frá út- löndum. Ég sá hana áður en við giftum okkur. Nú er hann svo fullur að hann veit hvorki upp né niður. Það verður ekki langt þangað til hann veit ekki hver hann sjálfur er. Sjáið þið bara hvað hann er rauður og þrút- inn!“ Þegar Lurkur sá hvað kona hans var reið, fór hann að stríða henni fyrir alvöru: „Þú ert ekkert blávatn! Þú skirrist ekki við að ljúga, bara ef þú getur slegið ryki í augun á húsbóndanum! Hvaða mynd er það sem ég sýndi þér? Var hún ekki saumuð hér? Og saum- uð af stúlkunni, sem fólk var að tala um núna nýverið! Satt að segja veit ég ekkert um klæðn- aðinn. Pólk má klæðast hverju sem það vill fyrir mér. En þetta heimili skorti ekki gimsteina. En nú eru þeir læstir inni í skápnum þínum. Þú keyptir þá sjálf af þeim fyrir tvö þúsund, og þó hefur þú ekki verið mann- eskja til að bera þá sjálf. Öllum hér er að minnsta kosti kunnugt um það mál!“ Þegar námueigandinn heyrði minnst á gimsteinana, sagði hann: „Þá verð ég að sjá!“ Hann var mesti eyðslubelgur, regluleg óráðsía, og hann var sérstaklega áf jáður í gimsteina. Honum þótti ekki eins gaman að neinu og að sjá fallegu stein- ana sína ljóma. Ef hann heyrði minnst á fallegan stein, langaði hann strax til að kaupa hann.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.