Úrval - 01.06.1953, Page 116
Ur ýmsum áttum.
700,000 Gyöingar í Israel.
Rösklega 700.000 Gyöingar hafa
flutzt til Israel síðan ríkið var
stofnað í maí 1948. Flestir eru frá
eftirtöldum löndum: Irak 125.000,
Rúmeniu 122.000, Póllandi 106.000,
Norðurafríku 97.000, Yemen 45.000
og færri frá Búlgaríu, Tyrklandi
og Iran. Flestir innflytjendanna
tala aðeins mál þess lands, sem
þeir koma frá. Hafa af þessu skap-
ast mikil vandræði. Til að bæta
úr þeim, hefur verið stofnað til
tungumálanámskeiða, og sækja
þau um 50.000 manns á ári.
Vísifingur — þumalfingur!
1 fyrsta skipti í sögu læknavís-
indanna hefur vísifingur verið
fluttur þangað sem þumalfingur
var áður. Aðgerðina framkvæmdi
amerískur herlæknir í sjúkrahúsi
vestra. Sjúklingurinn var hermað-
ur, sem misst hafði þumalfingur
hægri handar í stríðinu í Kóreu.
Fólksfjöldinn í heiminum.
Árið 1950 var síðast talinn sam-
an mannfjöldinn í heiminum, og
reyndist hann 2.400 milljónir, sem
skiptast þannig: Evrópa (Sovét-
ríkin ótalin) 396 millj., Afríka 198
millj., Ameríka 328 millj., Asía
(Sovétrikin ótalin) 1.272 millj.,
Ástralia 13 millj., Sovétríkin 193
millj. (talið 1946). Þéttbýlið er
mest í Evrópu. Ibúatala á hvern
ferkm. er í nokkrum löndum sem
hér segir: Monaco 11000, Hollandi
392, Saar 367, Belgíu 283, Bret-
landi 209, Þýzkalandi 193, Sviss
114, Danmörku 98, Frakklandi 76
og Islandi 1.
Óslítandi gervigúm.
„Hjólbarðar sem endast lengur
en bíllinn" — við megum eiga von
á að lesa þetta í auglýsingum
áður en langt um líður. Hinar
þýzku efnaverksmiðjur Bayer-'f
Werke í Leverkusen hafa búið til
nýtt gervimgúm, sem gefið hefur
verið nafnið Vulcollcm, og sem
virðist vera næstum að segja
tæknilegt kraftaverk. Amerískar
gúmverksmiðjur, sem gert hafa
tilraunir með þessa nýju uppfinn-
ingu, telja að þetta nýja efni muni
valda byltingu í gúmiðnaðinum.
Hjólbarðar úr Vulcollan eru svo
sterkir, að varla sér á þeim slit,
þegar bíllinn hefur að öðru leyti
gengið sér til húðar.
Það er hægt að gera gúmsóla
úr Vulcollan, og eru þeir svo sterk-
ir, að þeir slíta að minnsta kosti
tvennum yfirleðrum.
Of snemmt er þó að fara til
skósmiðs til að fá Vulcollan-sóla
undir skóna sína, eða til bílasal-
ans til að fá Vulcollan-hjólbarða
undir bílinn. Verðið á því er enn
svo hátt, að ekki hefur þótt fært
að setja það á markað. Amerískir
sérfræðingar telja þó, að fram-
Framhald á 3. kápusiCu.
STEINDDRSPRENT H.F.