Úrval - 01.04.1955, Qupperneq 29
Um hin hörmulegu. ævilok spænska
skáldsnillingsins —
GARCIA LORCA.
Grein úr „Verden Idag“,
eftir Bent Rönne.
GARCIA LORCA var 37 ára
þegar hann féll fyrir kúl-
um falangistanna. Óumflýjan-
legt, munu menn segja. Eins og
það var óumflýjanlegt, að skáld-
skapur hans, sem fyrir löngu
var orðinn eign þjóðarinnar,
öðlaðist nú nýtt, sjálfstætt
líf og varð leiðarljós spænskrar
alþýðu í baráttu hennar. Og
þó var hann í rauninni í aðra
röndina fagurkeri, sem ekki tók
vitandi neinn þátt í félags- og
stjórnmálabaráttu fólks síns og
nefndi aldrei Spán á nafn í
skáldskap sínum. En enginn
hafði sem þessi andalúsiski
bóndastúdent klædd holdi og sál
tilfinningalíf spænsku þjóðar-
innar, enginn hafði sem hann
skynjað og túlkað tilfinningar
hennar í sýnum þar sem sveit-
in hans birtist heit og sólbjört
og fólkið, sem byggir hana.
Þessvegna tók spænsk alþýða
ástfóstri við hann. Það geisluðu
frá honum seiðmagnaðir töfrar
þegar hann söng ljóð sín og lék
sjálfurundir ágítar, og hin hug-
myndaríku, eggjandi sígauna-
ljóð hans voru þegar á allra
vörum, er Spánn varð lýðveldi
árið 1931. Menntamálaráðherra
hinnar nýju stjórnar, sem var
vinur hans, gerði hann sama
árið að forstöðumanni einskon-
ar þjóðleikhúss, en það var
ferðaleikhús stúdenta, La Bar-
raca, sem lék verk hinna sígildu
meistara, Lope de Vergaz og
Caldons, og hin nýju leikrit Lor-
ca sjálfs; leikið var á torgum
þorpanna, í skúrum og hlöðum,
fyrir bændur og verkamenn.
Þetta var án efa listræn við-
leitni hjá Lorca, en hvort sem
hann stóð frammi fyrir fólkinu
sem leikstjóri eða skáld og leik-
ritahöfundur, var hann í krafti
persónuleika síns hvöt til fólks-
ins að gera hina nývöktu von
þess um frelsi og réttlæti að
veruleika. I kvæðum Lorca
tengjast ljóðræn dulúð og ein-
faldleiki þjóðvísunnar í frjórri
einingu. List hans er í heild frá-
bær samruni nútímalistar og
fornra hefða. Hinir sérkennilegu
töfrar leikrita hans um konuna
í spænsku sveitaþorpi: Blóð-
brullaup, Yerma og Hús Bern-
arda, eru ekki hvað sízt fólgnir
í því hvernig sífellt skiptast á
í þeim óbundið, safaríkt alþýðu-