Úrval - 01.04.1955, Síða 47

Úrval - 01.04.1955, Síða 47
HVARF DANSKA SKÓLASKIPSINS KÖBENHAVN 45 seglskip í hafsnauð frá eyjunni Tristan da Cunha í Suðurat- lantshafi. Hinn 4. marz 1929 sendi út- gerðarfélagið út fyrstu tilkynn- inguna um Köhenhavn. „Þar eð skipið er enn ekki komið á á- kvörðunarstað, er ástæða til að ætla, að hjálparvélin hafi bil- að. Og með því að leið skipsins er mjög fáfarin, eru möguleik- arnir á því að það geti náð loft- skeytasambandi við umheiminn mjög litlir.“ Það er skiljanlegt, að þessi tilkynning varð ekki til þess að róa foreldrana, og næstu vikur liðu í ugg og kvíða. Frá aðal- fundi Ö. K. hinn 27. marz barst svolátandi orðsending: „Frá opinberum aðilum hefur félagið fengið upplýsingar um, að á leið Köbenhavn hafi sést ísjakar og er ekki útilokað, að þokur af völdum íssins hafi tafið skipið langan tíma.“ Þessi -tilkynning varð enn síður til að róa aðstandendurna og komust nú allskonar sögur á kreik. Enska flotamálaráðu- neytið gaf skipun um að eitt skip þess, Deucalion, skyldi leggja úr höfn í Höfðaborg til að leita að hinu týnda skóla- skipi. Nokkrar óbyggðar eyjar eru á þessari sigiingaleið: Prins Edwardeyjar, Crozeteyjar og Kerguelen, en hvalfangarar koma þar nokkrum sinnum á ári og þar eru matarbirgðir og fatnaður handa skipbrotsmönn- um. Frá þessu er skýrt á öll- um sjókortum. Deucalion vitjaði nú þessara eyja, en varð hvergi var við skólaskipið eða skips- höfn þess. Enska skipið Beltana, sem 1. maí fór frá Adelaide til Höfða- borgar, leitaði á óbyggðu eyjun- um St. Paul og Amsterdamey, en án árangurs. Og annað enskt skip, Halesius, sem fór 4. maí frá Höfðaborg til Buenos Aires, fékk skipun um að koma við á eyjunum Tristan da Cunha og Gough í Suðuratlantshafi. Á Tristan da Cunha búa aðeins um 200 manns, afkomendur hval- fangara og hermanna frá Napó- leonsstríðunum. Engin loft- skeytastöð var á eyjunni og gat hugsast, að Köbenhavn hefði leitað þar hafnar í nauð, en skipakomur þangað voru aðeins tvisvar á ári. Foreldrarnir heima í Dan- mörku biðu milli vonar og ótta þangað til 28. maí, en þá kom skeyti frá Halesius: „Hinn 21. janúar sást seglskip með fjór- um eða fimm siglum frá Tristan da Cunha og fór það vestan við eyjuna. Það virtist ekki láta að stjórn og hafði aðeins uppi eitt segl. Svo leit út sem skipið mundi lenda á rifinu, af því að það var komið inn í þangbeltið, en þegar hvorki skipið né brak úr því rak á eynni, töldu menn að það hefði sloppið hjá. Sjór var þungur og gátu eyjar- skeggjar ekki sett út bát til að athuga nafn skipsins. Hinn 13.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.