Úrval - 01.03.1970, Blaðsíða 6
3. HEFTI - 29. ÁR - MARZ 1970
Turn sólarinnar
EFTIR
BILL HOSOKAWA
ÚRDRÁTTUR ÚR
EMPIRE
EXPO '70
Heimssýning
í Japan
arðýtur hafa rutt burt
hávaxna bambusviðn-
um, sem skrýddi eitt
sinn Senrihæðir fyrir
norðaustan stórborgina
Osaka í Japan. í stað fuglasöngsins
heyrist nú hávaði í dieselvélum og
vélsögum. Upp úr leirkenndum
jarðveginum hafa risið alls konar
byggingar, furðulegar að formi og
lögun, byggingar, sem brátt munu
vekja furðu þeirra 40 milljón gesta,
sem búizt er við, að komi á heims-
sýninguna í Osaka á þessu ári.
Svæðið, sem heimssýningin verður
haldin á, en hún gengur undir nafn-
inu „EXPO ‘70“, nær yfir 815 ekrur.
Þar veríður um að ræða fyrstu
heimssýningu í Austurlöndum, og
mun hún opna þ. 15. marz og standa
yfir í 6 mánuði.
Japan sótti fyrst um að fá að hafa
heimssýningu árið 1890, en það var
lítið tekið undir þá umsókn. Svo
átti að halda heimssýningu í Japan
árið 1912, en hætt var við hana
vegna dauða Meiji, hins ástsæla
keisara landsins. Undirbúningur
undir heimsýningu í Tokyo árið 1940
var kominn langt áleiðis, þegar
heimsstyrjöldin brauzt út í Evrópu.
Þá höfðu þegar verið seldir 12 mill-
jón miðar. Eigi einhver enn slíkan
miða í fórum sínum, mun hann gilda
á heimssýninguna í ár.
Nú eiga Japanir stórkostlegri vel-
gengni að fagna, meiri en dæmi eru
til um þar í landi. Þeir skara nú