Úrval - 01.03.1970, Blaðsíða 8
6
ÚRVAL
einnig höggmyndir og málverk, sem
lánuð hafa verið af söfnum í Vati-
kaninu, Louvresafninu, Tate-mál-
verkasafninu í Lundúnum og öðr-
um heimsfrægum söfnum. í banda-
ríska sýningarskálanum mun verða
sýnd 21 málverk og hafa þau verið
valin á þann hátt, að þau gefi all-
yfirgripsmikla mynd af þróuninni í
bandarískri málaralist. Þar verða
m.a. málverk eftir Gilbert Stuart,
Winslow Homer, John Singer Sar-
gent, Thomas Hart Benton, Grant
Wood, Georgiu 0‘Keefe og Andrew
Wyeth.
Rúmlega 200 veitingahús mu'nu
bjóða allt frá smásnarlréttum upp
í stórkostlegar máltíðir frá 28 þjóð-
um. Og eftir að gestir hafa þannig
fullnægt þörfum síns innri manns,
geta þeir reikað um 64 ekru jap-
anskan garð, þar sem getur að líta
tvö stór stöðuvötn, sitraindi læk,
fossa, dvergvaxin tré, steinljósker,
tehús og gestahús fyrir fyrirfólk.
NÝSTÁRLEG
FÓLKSFLUTNIN G ATÆKI
Osaka er næststærsta borg Japan
og helzta miðstöð viðskipta og kaup-
sýslu þar í landi. Á borgarsvæðinu
búa næstum 8 milljónir manna. í
aðeins nokkurra mílna fjarlægð frá
borginni eru borgirnar Kyoto og
Nara, vöggur japanskrar menningar,
þar sem djúpir tónar musteris-
klukknanna óma enn yfir skífu-
þökin í rökkurbyrjun. Osaka og
nærborgir hennar eyða nú ofboðs-
legum upphæðum til samgöngubóta.
Þær mun eyða samtals 1.6 billjón
dollurum til þess að leggja nýjar
hraðbrautir og brýr, bæta járn-
brauta- og neðanjarðarbrautaþjón-
ustuna, stækka hafnir og gera
skemmtigarða. Hin glæsilega, nýja
millilandaflughöfn í Osaka hefur
þegar gert borgina að einni helztu
flugsamgöngumiðstöð landsins á al-
þj óðaf lugleiðum.
Sýningarsvæðið er eins konar
grunn „skál“, nokkurn veginn fer-
hyrnd í lögun, en þó með ávölum
hornum. f þessari grunnu „risalaut“
er gjá, sem sker hana sundur. Um
gjá þessa var lögð járnbrautarlína
og hraðbraut með 6 akreinum alla
leið að aðalhliði svæðisins, sem er á
miðju svæðinu. Síðan eru fjögur
önnur hlið við útjaðra „skálarinn-
ar“, og eru þau tengd með algerlega
sjálfvirkri járnbrautarlínu svokall-
aðri einbrautarlínu, en eftir henni
renna sjálfvirkair lestir á einum
tein. Kerfi þetta getur annað flutn-
ingi 13.000 manna á klukkustund.
Og flutningarnir verða ókeypis. öll
hliðin eru svo tengd með hreyfan-
legri gangstétt, sem er umlukt gagn-
sæju „plaströri", með fullkomnu
lofthitatemprunar- og ræstingar-
kerfi, og er gangstétt þessi í 12—18
feta hæð yfir jörðu. Getur hún flutt
9000 manns á klukkustund.
Nálægt miðbiki svæðisins er
Táknasvæðið, en yfir því er gagn-
sætt þak, næstum 1000 fet á lengd
og 300 fet á breidd. Sólarturn gnæfir
svo upp yfir þak þetta. Inni í hon-
um er 160 feta hátt Lífstré. Hreyf-
anlegur stigi, sem annar flutningi
3600 manna á klukkustund, mun
flytja gesti upp eftir Lífstrénu, en
á meðan geta þeir virt fyrir sér
forsögudýr, og eru mörg þeirra véL