Úrval - 01.03.1970, Blaðsíða 3
FÖRSPJALL
„FLUGSTJÓRINN stóð í sömu
sporunum og horfði á, þegar með-
vitundarlaus drengurinn var látinn
upp í vörubíl. Og hann tautaði
stöðugt fyrir munni sér: „Ómögu-
legt!“
☆
ÞETTA ER BROT úr greininni
Laumufarþegi, en þar segir frá þeim
óvenjulega atburði, sem gerðist á
síðasta ári og kunnur er af frétt-
um, er kúbanskur piltur faldi sig
inni í hjólageymslu flugvélar og
flaug þannig yfir Atlantshafið. Sér-
frœðingur í gerð flugvéla heldur
því fram, að það sé aðeins einn
möguleiki á móti milljón til þess,
að maður kremjist ekki til bana,
þegar hin risavöxnu tvöföldu hjól
flugvélarinnar eru dregin inn í
hjólageymsluna. Og samkvæmt eðli
hlutanna átti pilturinn einnig að
deyja á leiðinni, bæði af súrefnis-
skorti og hinum mikla kulda. En
hann komst engu síður lífs af, og
það er frásögn hans sjálfs, sem við
birtum í þessu hefti.
☆
SÁ ATBURÐUR, sem vœntanlega
verður mest til umrœðu í fjölmiðl-
unartœkjum þennan mánuð, er að
öllum líkindum heimssýningin
mikla í Japan, Expo 70, sem opnuð
verður 15. marz. Heimssýningarnar
hafa þótt takast vel undanfarin ár
og hafa laðað til sín mikinn fjölda
fólks hvaðanœva að úr heiminum.
Og ekki er ólíklegt, að aðsóknin
verði meiri nú en áður. Japanir hafa
um nokkurt skeið átt mikilli vel-
gengni að fagna og skara nú fram
úr að margra dómi bœði á sviði
tœkni og lista. Þeir sem fylgzt hafa
með undirbúningi sýningarinnar,
spá því, að hún verði svo stórkost-
leg, að annað eins hafi ekki sézt í
heimi hér. 70 þjóðir eiga þarna
sýningarskála, en að auki nokkur
einstök fylki, borgir og fyrirtœki.
Expo 70 er stórfyrirtæki. því að
þar er um að ræða rúmlega tveggja
billjón dollara fjárfestingu.
/ — N
Kemur út mánaðarlega. Útgefandi: Hilmir hf.,
Sklpholti 33, Reykjavik, pósthólf 533, simi 35320
Ritstjóri: Gylfi Gröndal. Aígreiðsla: Blaðadreif-
ing, Skipholtl 33, simi 36720. Verð árgangs króniu
500.00. I lausasölu krónur 50.00 heftið. Prentun og bókband: Hllmlr h.f.
Myndamót: Rafgraf h.f.
V_________________________________________________________________________J