Úrval - 01.03.1970, Blaðsíða 12
10
URVAL
verður svipuð 5 hæða húsi að hæð,
þ. e. að mestu leyti neðanjarðar. Á
daginn mun sólskinið streyma inn
í bygginguna í gegnum trefjaglerið.
Á kvöldin mun innanhúslýsing
veita mjúka birtu, er virðist gló-
andi. Sýningin er aðeins á tveim
hæðum, en þar verður tvöfalt sýn-
ingarrými miðað við bandaríska
sýningarskálann á heimssýningunni
í Montreal.
Á bandarísku sýningunni mun
verða lögð mikil áherzla á geim-
ferðaafrek Bandaríkjanna. Þar að
auki mun verða rekinn þar áróður
fyrir bandarískum lífsvenjum, en
þó verður honum mjög í hóf stillt.
Risastórar ljósmyndir munu sýna
þjóðlíf í Bandaríkjunum. Sýndar
munu verða íþróttir, sem bæði
Bandaríkjamenn og Japanir iðka og
hafa ánægju af. Einnig verða þar
ýmsir munir, tengdir sögu og þjóð-
lífi Bandaríkjanna á ýmsum tímum
og listiðnaðarmunir. 60 ungir
bandarískir menn og konur starfa
sem leiðsögumenn í bandaríska
sýningarskálanum. Og voru þau
valin úr hópi 600 umsækjenda. Þau
tala öll japönsku reiprennandi. Þau
munu fljúga til Tokyo í þessum
mánuði (janúar) og eyða þar
nokkrum vikum í umfangsmikið
nám og alls konar undirbúning, er
gera á þau sem færust til þess að
leysa störf þessi af hendi.
„ÞEIM MUN TAKAST ÞAГ
Byrjað var að ryðja til á sýning-
arsvæðinu þ. 15. marz árið 1967. Og
byrjað var að reisa byggingar þar
þ. 15. marz árið 1968. Hófst það
starf með hátíðlegri athöfn í hefð-
bundnum japönskum stíl. Var at-
höfn sú framkvæmd af Shinto-
prestum. Hófst hún á því, að reistar
voru stangir, enda er athöfn þessi
kölluð „ricchu“ (stangareising). Nú
dregur óðum að opnunardegi sýn-
ingarinnar, og vinna iðnaðarmenn
þar oft í vöktum allan sólarhring-
inn.
Suma dagana virðist sem það
muni reynast ógerlegt að fullgera
alla þessa skála, vegi og vatns-,
skolp- og rafleiðslur tímanlega. En
Henry Gosho, blaðafulltrúi banda-
ríska sýningarskálans, minnist þess,
er verið var að fullgera Olympiu-
leikjasvæðið í Toyko árið 1964.
Tveim vikum fyrir opnunardaginn
var ekki enn búið að reisa stoðirn-
ar fyrir síðasta hluta súlnahrað-
brautar til leikvangsins. Rödd Gos-
hos verður lotningarfull, er hann
bætir við: „En Japanir höfðu ekki
aðeins lokið lagningu hraðbrautar-
innar fyrir opnunardaginn, heldur
voru þeir búnir að planta trjám og
blómum á milli súlnanna undir
hraðbrautinni og við hliðina á henni,
og blómin voru farin að blómstra.
Þeim mun takast slíkt hið sama í
Osaka, ef þörf krefur.“
Við krossfestum okkur milli tveggja ræningja: eftirsjá eftir liðnum
dögum og ótt.a við komandi daga,
Fulton Oursler,