Úrval - 01.03.1970, Blaðsíða 85
ASTLEITNÍ
83
„Bara að maður vceri söðull, sem hún
gæti setið á.“
manga við, sé hrein á hálsinum og
bak við eyrun og hverfa snarlega
frá henni, uppgötvi þeir að ekki sé
allt með felldu í þeim efnum.“
Annars hafa formælendur langra
trúlofana haft í huga þá kosti sem
fylgja þessum trúlofunum, „á þeim
tíma er hægt að laga ýmsa galla og
móta hugarfar þeirrar heittelskuðu.
— „Eitt ár þolinmæði og þraut-
seigju, þúsund hugsanir og getgát-
ur, vonir, ótti, óskir ...“
Þarna má nú segja að flestir var-
naglar séu slegnir eftir öllum kúnst-
arinnar reglum. Því verður ekki
neitað að á vorum tímum hefur
þessu vissulega farið mikið aftur,
bæði mun skorta kunnáttu og tíma.
Eisenhower fyrrverandi Banda-
ríkjaforseti bað konu einnar í síma
og er vissulega minni „stemning“
yfir slíku en mansöng eða eldheitu
ástarbréfi, en hingað til hefur tækn-
in þó hvorki komið í veg fyrir að
ungt fólk verði ástfangið eða gifti
sig. Ast og hjónabönd munu ekki
líða undir lok þrátt fyrir alla tækn-
ina — og sjónvarpið — sem breiðist
út óðfluga. Samt hefur fulltrúinn á
húsmæðrasamkundunni rétt fyrir
sér í því, að tæknin hefur áhrif á
þetta hvorttveggja til hins betra
eða verra, það er þitt að dæma um,
lesandi góður.
Fyrir nokkrum árum var útvarp-
að frá Moskvu dálitlum nútíma
mansöng, sem ku vera dæmigerður
fyrir þróunina í þessum málum þar
fyrir austan. Ungi maðurinn syngur
fyrir sína heittelskuðu um nóttina
og er ljóð hans svo sem ósköp svip-
að ýmsum vestrænum ástarljóðum,
nema að einu leyti: í rússnesku út-
gáfunni er það ekki næturgali eða
lævirki, sem fyllir loftið söng sínum,
heldur dráttarvél! Ungi Rússinn
syngur: Það er dásamlegt að vinna
á svo fagurri nóttu — í tunglskininu
— ég syng fyrir unnustuna mína og
spara bensínið.
Það er alveg augljóst, að þessi bið-
ill er töluvert frábrugðinn þeim
biðlum, sem við eigum að venjast,
en ástin má aldrei giatast; því
gleymir hann ekki í þessum línum:
Frá því augnabliki er ég sá þig
fyrst •— varð ég ástfanginn af af-
köstum þínum ...
Menningin á bak við allt þetta er
vitanlega sú sama, sá rússneski er
jú vissulega alveg jafn ástfanginn
og hinir, en rómantíkin hefur tekið
á sig undarlegar myndir.