Úrval - 01.03.1970, Blaðsíða 115
POPPÓ
113
„Já . . . það er alveg rétt.“ Það
birti yfir svip Poppos. „Það verður
nú gaman . . Joe/‘ sagði hann og
brosti út undir eyru. „Að verða
. . . vinur þinn . . . aftur.“
Það var grámyglulegur rigningar-
morgunn. Ég færði hann í regn-
kápu og sjóhatt, á meðan við bið-
um eftir leigubíl. Fötin voru of stór
honum, og hann virtist nú enn
minni.
Loks tókst mér að ná í bíl. Ég
sagði bílstjóranum. hvert aka skildi.
Ég fór upp í bílinn með Poppo.
„Ertu enn viss um, að þú viljir
ekki, að ég fylgi þér?“ spurði ég.
„Ég er viss . . . Joe.“
Hann sá, að bílstjórinn horfði
forvitnislega á okkur, svo að hann
rétti mér höndina og sagði lágt og
feimnislega: . Bless.“ Við kvödd-
umst með handabandi, og ég steig
út.
Ég horfði á eftir bílnum, og þá
leit Poppo skyndilega við og veif-
aði til mín þar sem ég stóð á gang-
stéttinni í allri rigningunni.
☆
í bók sinni „Texasbúarnir“ segir David Nevin frá þvi, að sækjandi
I máli einu hafi viljað draga það fram -í réttinum, að eitt vitni sak-
'bornings í máli einu væri mjög óáreiðanlegt og því ætti ekki að taka
framburð þess trúanlegan. Því -hóf hann að spyrj-a vitnið i þaula.
Hann byrjaði á þessari spurningu: „Hvað starfið þér?“
„Ég á dálítið a-f svinum, og svo st-el ég svíni og s-víni svona öðru
hverju,“ svaraði vitnið.
„Brjótið þér nokkurn tima lögin?"
„Já, það geri ég. Ég brugga .svolítið a-f whisky heima öðru hverju.
Og svo skýt ég friðuð dádýr, þegar -mig langar til."
Nevin segir, að þetta hafi verið fullnægjandi upplýsingar fyrir kvið-
dómendur um gildi vitnisburðar vitnisins. Þeir trúðu nú hverju orði
vitnisburðar þess. Þeir vissu, að Þetta var hinn traustasti maður og
að óhætt mundi að treysta vitnisburði ,hans.
Morrow.
Orðum flestra stjórnmálamanna -má skiipa í ferns konar flokka, þ.e.
þau orð, sem þeir hafa skrifað á ræðublöðin, þau orð, sem þeir létu
sér raunverulega um munn fara, þau orð, sem þeir vildu, að þeir
hefðu látið sér um munn fara, og þau orð, sem sagt er næsta dag, að
þeir hafi látið sér um munn fara.
Don Dedera.
Órökvísi konunnar sannaðist að eilífu, þegar hún tók ráðleggingar
um mataræði gildar, sem henni voru gefnar af talandi höggormi.
Dr. Norman Carigg.