Úrval - 01.03.1970, Blaðsíða 9
EXPO ’70 — HEIMSSÝNING í JAPAN
7
knúin, til þess að þau megi verða
eðlilegri.
Eftir tveim greinum Lífstrésins
fara gestir yfir á þaksýningarsvæð-
ið. En þar verða til sýnis heimili og
borgir framtíðarinnar, myndir, sem
lýsa andstæðunum stríði og friði,
og geimferðasvæði, sem er þannig
útbúið, að gestina grípur sú kennd,
að þeir svífi um Vetrarbrautina.
Síðan munu gestir fara í hreyfi-
stiganum niður í öryggi Móður-
turnsins. Undir þaki Táknasvæðis-
ins er Hátíðarsvæðið, þar sem hald-
ið verður upp á hina ýmsu þjóð-
hátíðardaga og haldnar ýmsar sér-
stakar sýningar.
Búizt er við ofboðslegu mannhafi
á sýningu þessa eða allt að 420.000
manns daglega, þegar aðsóknin
verður sem mest. Á tveim risabíla-
stæðum verður rúm fyrir 21.500
bíla. Á sýningunni verða fáanlegar
3000 myndavélar til útlána. Þegar
rignir, verða fyrir hendi 10.000
regnhlífar endurgjaldslaust. Búizt
er við, að á ósköp venjulegum
sunnudegi verði 210 börn viðskila
við foreldra sína. Foreldrar og börn
munu fá fjölskyldunúmer við inn-
ganginn til þess að gera leitina að
foreldrunum auðveldari. Eftirlits-
bifreiðir munu flytia týnd börn til
móttökustöðvar, og þar verður
dekrað við þau, en á meðan munu
fjölskyldunúmer barnanna verða
sýnd á risavöxnum, raflýstum til-
ky nningarsp j öldum.
F.BÐI OG HÚSNÆÐI
Hægt er að hýsa 82.000 gesti í
japönskum gistihúsum í Osaka og
víðs vegar kringum sýningarsvæð-
ið, þ. e. á svæði, sem er innan
klukkustundaraksturs frá sýningar-
svæðinu. En samt eru aðeins til um
18.000 rúm í hinni vestrænu merk-
ingu orðsins í gistihúsum þeim, sem
rekin eru að Vesturlandasið. Um
350 fjölskyldur á Osakasvæðinu
hafa samþykkt að opna heimili sín
fyrir erlendum gestum, og talar
einhver meðlimur í hverri fjöl-
skyldu eitthvert erlent tungumál.
Gestir þessir munu borga 7 dollara
á dag fyrir herbergi og morgun-
verð. *
En fjölmargir heimssýningargest-
ir munu ekki dvelja á Osakasvæð-
inu, heldur í sjálfri Tokyo. Ríkis-
járnbrautirnar eru því að auka og
bæta þjónustu þá, sem boðið er
upp á í hinum frægu Hikarikúlu-
lestum þeirra, sem þjóta þessar 320
mílur milli Tokyo og Osaka á rúm-
um 3 tímum. Á mestu annatímun-
um munu 9 lestir (sem taka sam-
tals 25.200 farþega) þjóta samtím-
is hvora leið milli þessara tveggja
stórborga.
RISABLÓM
Sýningarskálarnir á heimssýn-
ingunni eru geysilega fjölbreyttir,
allt frá skálum Frakklands, en þeir
eru eins og sápukúlur í laginu, til
skála Búlgaríu, en hann líkist
píramída. Veggir kanadíska skálans,
sem hafa 45 gráðu halla, eru klædd-
ir speglum að utan. Ástralski skál-
* Fyrirspurnir um gistirými ætti
að senda til Visitors Department
(Gestadeildar), 1970 World Exposi-
tion (Heimssýningunni 1970), Osaka,
Japan.