Úrval - 01.03.1970, Blaðsíða 7
EXPO 70 — HEIMSSÝNING í JAPAN•
5
fram úr á sviði tækni og lista. Og
þessi þjóð er nú að undirbúa svo
stórkostlega sýningu, að annað eins
hefur ekki sézt hér í heimi. Rúm-
lega 70 þjóðir eiga þar sýningar-
skála, einnig 3 kanadisk fylki,
bandarísku fylkin Washington og
Hawaii, borgin San Francisco og
fjöldi japanskra fyrirtækja. Af
stórveldum heimsins vantar aðeins
Rauða-Kína. Ríkisstjórn Japan
komst að þeirri niðurstöðu, að það
væri ekki viðeigandi, að senda
Rauða-Kína boð um að taka þátt í
sýningunni, þar eð ekkert stjórn-
málasamband væri milli landanna.
EXPO ‘70 er stórfyrirtæki, því að
þar er um að ræða rúmlega tveggja
billjón dollara fjárfestingu, sé allt
meðtalið. Aðgangseyrir er $2.22 fyr-
ir fullorðna, $1.66 fyrir unglinga og
ungt fólk (15—22 ára) og $1.11 fyrir
börn (4—14 ára). Og búizt er við
að aðgangseyririnn muni aðeins
nægja fyrir rekstrarkostnaði sýn-
ingarinnar.
Japanski symngarskálinn: 5 hring-
laga byggingar, sem mynda risavawiö
kirsuberiablóm.
Skáli Bandaríkjanna.
TEHÚS OG
ROKKHL J ÓMLIST AMENN
Hvarvetna munu sýningaratriðin
túlka kjörorð sýningarinnar, en það
er „Framfarir og samlyndi meðal
manna“. Sýningin EXPO ‘70 mun
hylla hina sameiginlegu leit manna
að samlyndi og samræmi milli
mannanna, milli mannsins og um-
hverfis hans og milli þjóða.
Margt verður þar á boðstólum,
sem draga mun að sér athygli sýn-
ingargesta. Og fer það eftir því,
hvenær þeir heimsækja sýninguna.
Þar mun Bolshoiballettinn koma
fram og einnig gamanleikarinn Ed
Sullivan. Þar verður sýning fíla frá
Thailandi, japanskar leiksýningar í
hefðbundnum Nohstíl, alþjóðlega
fegurðarsamkeppnin, þar sem Ung-
frú Alheimur verður kosin, grískir
harmleikir, sýning Dýrafjölleika-
hússins í Bremen, Fílharmoníu-
hliómsveit New York-borgar, rokk-
hljómlistarmenn frá mörgum lönd-
um og alls konar sýningar flestra
beirra þjóða, sem þátt taka í sýn-
ingunni, skautasýningar, sundball-
ettar og flugeldasýningar.
Þar mun einnig verða til sýnis um
750 stórkostleg listaverk, þar á með-
al rúmlega 30 japanskir þjóðardýr-
gripir, skermar, málverk, o.fl.,